Fotbolti.net
20.10.26 - 11:00
Innkastið

Spá því að Aron Sig slái markametið á laugardaginn

Aron Sigurðarson.

Aron Sigurðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég ætla að spá því að hann slái metið í lokaumferðinni," segir Elvar Geir Magnússon í Innkastinu þar sem rætt var um Aron Sigurðarson og markametið.

KR fær Breiðablik í heimsókn í lokaumferðinni á laugardaginn og Aron er einu marki frá markametinu.

„Það kæmi manni alls ekki á óvart ef hann myndi gera það. Ég kalla það kannski ekki lægð en það hefur lítið verið í gangi síðan hann fór í þetta fræga viðtal. Hann talaði um að rústa þessu markameti en ef hann slær það er það verðskuldað, hann hefur verið stórkostlegur í sumar," segir Haukur Páll Sigurðsson í þættinum.
Víðir Sig: Eru álög á Aroni og markametinu?
TENGT EFNI

Víðir Sig: Eru álög á Aroni og markametinu?

Aron hefur ekki skorað síðan 6. september en er með 20 mörk. Benoný Breki Andrésson á metið, skoraði 21 mark fyrir Vesturbæjarliðið árið 2024 og varð jafnframt fyrstur til að rjúfa 20 marka múrinn í deildinni.

Markahæstu leikmenn:
20 mörk - Aron Sigurðarson (KR) (4 víti)
14 - Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
14 - Markús Páll Ellertsson (ÍA)
14 - Viktor Jónsson (ÍA) (2 víti)
12 - Elías Már Ómarsson (KR)
12 - Stefan Ljubicic (Keflavík)
11 - Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik) (1 víti)
11 - Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA) (2 víti)
Spá því að Aron Sig slái markametið á laugardaginn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.