Fotbolti.net
20.10.26 - 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stórbætti stoðsendingametið - „Búinn að heyra um þetta met margoft frá Adam Ægi vini mínum"

Erfiðara að leggja upp en skora

Lagði upp þrjú mörk gegn KA.

Lagði upp þrjú mörk gegn KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson sló á laugardag stoðsendingametið í efstu deild þegar hann lagði upp þrjú mörk gegn KA í 4-1 sigri Vals. Samkvæmt tölfræði Óskars Ófeigs Jónssonar var Tryggvi búinn að jafna metið fyrir leikinn en stórbætti það svo í leiknum gegn KA.

Tryggvi skoraði einnig eitt mark í leiknum og er því með tveggja stafa tölu í bæði mörkum og stoðsendingum í Bestu deildinni á þessu tímabili.
Sterkastur í 26. umferð - Sló stoðsendingametið í efstu deild
TENGT EFNI

Sterkastur í 26. umferð - Sló stoðsendingametið í efstu deild

Fékk skilaboð frá sáttum þjálfara Þórs
Úrslitin höfðu áhrif á botnbaráttuna því á sama tíma sigraði Þór Stjörnuna og er Þór með örlögin í sínum höndum í baráttunni við KA fyrir lokaumferðina. Akureyrarliðin berjast um sæti í Bestu deildinni að ári.

Tryggvi ræddi við Fótbolta.net í dag og kvaðst hafa fengið þakkarskilaboð frá sínum gamla þjálfara, Sigurði Heiðari Höskuldssyni, eftir leikinn. Siggi var aðstoðarþjálfari Vals tímabilið 2023 og er í dag þjálfari Þórsara.

Sló met síns fyrrum liðsfélaga
„Ekki fyrr en eftir FH leikinn, þá sá að ég væri kominn upp í tólf stoðsendingar. Þá svona vissi ég af þessu. Ég var búinn að heyra um þetta met margoft frá Adam Ægi vini mínum í klefanum, þannig maður var með fjöldann sem þurfti á hreinu og með þetta á bakvið eyrað, en þetta var ekkert sem ég stefndi á þannig lagað. Svo legg ég upp fyrsta markið og annað, þá fór ég að pæla meira í þessu. Ég var sáttur þegar Dagur (Orri Garðarsson) kláraði þetta í uppbótartíma," segir Tryggvi sem lagði upp tvö mörk fyrir Dag á laugardag. Adam Ægir Pálsson, leikmaður KA og fyrrum leikmaður Vals, var einn af þeim sem hafði átt stoðsendingametið áður en Tryggvi sló það.

Erfiðara að leggja upp en skora
Sem sóknarmaður er maður jafnmikið að spá í stoðsendingum og mörkum?

„Þar sem ég er oftast á kantinum þá pæli ég í þessu líka. Það er í rauninni erfiðara að leggja upp mörk heldur en skora, það eru fleiri mörk en stoðsendingar á hverju tímabili. Ég horfi í að reyna ná tveggja stafa tölu í báðu, þá er ég mjög sáttur. Sem kantmaður hugsa ég alveg um þetta, en ég held að þeir sem eru að spila frammi séu ekkert mikið að pæla þannig í að leggja upp mörk."

Fjórum sinnum í röð skorað tíu mörk eða meira
Þetta er allavega í annað skiptið sem Tryggvi nær að fara í yfir tíu mörk og tíu stoðsendingar. Hann náði því líka 2023. Tímabilið í ár er svo fjórða árið í röð sem Tryggvi skorar tíu mörk eða fleiri í deildinni.

„Það er mjög gott, það er ákveðinn stöðugleiki. Það er talan sem ég horfi í persónulega fyrir hvert tímabil; að ná tíu mörkum. Að ná stöðugleika í því er mjög gott fyrir mig."

Pabbi Tryggva Hrafns átti metið í 16 ár
Óskar Ófeigur birti grein á Vísi í morgun um stoðsendingametið og kom þar fram að faðir Tryggva, Haraldur Ingólfsson, hefði átt stoðsendingametið á árunum 1992-2008. Haraldur var stoðsendingakóngur í efstu deild tímabilin 1992-1997.

„Ég á eftir að lesa þessa grein hjá Óskari, vissi ekki að pabbi hefði átt metið, en vissi að hann hefði lagt upp helling á þessum frægu árum 1992-96. Maður vissi að hann hefði verið stoðsendingamaskína. Maður er líka búinn að heyra Jóa Skúla tala um það í þáttunum sínum (Svona var sumarið)."

Nafni Tryggva Hrafns, Tryggvi Guðmundsson, sló það svo 2008 og það var í eigu fimm annarra aðila áður en Tryggvi svo sló það á laugardag.

Fann sextándu stoðsendinguna
Áður en Óskar birti grein sína í morgun hafði verið miðað við að Tryggvi væri búinn að leggja upp fimmtán mörk í Bestu deildinni en Óskar segir Tryggva vera með sextán stoðsendingar og fréttamaður tilkynnti leikmanninum það.

„Veistu hvaða stoðsending eru sú sextánda?" spurði Tryggvi en fréttamaður stóð á gati. „Stoðsendingar geta verið skrítnar, ég vissi af tveimur þar sem ég átti fyrirgjöf og úr varð sjálfsmark. Það telur víst ekki inn í stoðsendingar. Svo eru einhver 'fantasy assist' sem telur ekki. Það þarf að senda á samherja sem skorar. Ég er ekkert búinn að liggja yfir þessu sjálfur og skoða hvað séu stoðsendingar. Ég skoða þetta bara í einhverjum 'öppum'. Það er flott að það hafi leynst þarna ein í viðbót," segir Tryggvi kátur.

Vonbrigða tímabil
Tryggvi var spurður út í tímabilið hjá Val. Liðið mun enda í 7. sæti deildarinnar, efsta sæti neðri hlutans, sem eru vonbrigði.

„Yfir heildina þá er þetta vonbrigða tímabil fyrir félagið. Alls konar hlutir í gangi, mikið af meiðslum og alls konar þannig áföll. Í síðustu sex höfum við tapað einum leik en það eru líka jafntefli á þeim kafla. Við vorum mjög nálægt því að enda í efri hlutanum, hefðum getað bjargað okkur fyrir horn með það, en það var jöfnunarmark á móti ÍA í uppbótartíma sem eiginlega fer með það. Það er styrkleiki hjá okkur að ná að halda haus og klára 7. sætið. Þú vilt enda tímabilið vel, annars tekur þú með þér neikvæðni og leiðindi inn í næsta tímabil."

Tvímælalaust hápunktur sumarsins
Hápunkturinn á tímabili Vals var sigurinn á Zrinjski Mostar í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Tryggvi var sjálfur frábær í því einvígi; skoraði öll þrjú mörk liðsins.

„Það er tvímælalaust hápunktur sumarsins hjá liðinu. Við áttum tvær mjög góðar frammistöður á móti þeim þó að það hafi legið ansi mikið á okkur úti. Við áttum frábæran leik heima og vorum svo mjög þéttir og hættulegir í skyndisóknum í útileiknum sem er eitthvað sem þarf oft að vera í Evrópuleikjum gegn jafn sterkum liðum. Okkur var ekki að ganga vel í deildinni á þessum tímapunkti en það var virkilega sterkt að klára þetta einvígi."

Gert fagmannlega
Tryggvi skrifaði undir hjá ÍA í sumar og verður leikmaður uppeldisfélagsins eftir tímabilið. Hvernig nærðu að ýta því til hliðar í sumar og klára tímabilið almennilega?

„Ég reyndi að gera þetta eins fagmannlega og hægt var. Ég lét Valsarana strax vita að ég væri búinn að skrifa undir og Valur vissi að ég væri í viðræðum við ÍA. Þetta er sjötta tímabilið hjá Val og í gegnum allan þennan tíma hefur mér liðið mjög vel og félagið komið mjög vel fram við mig. Ég hugsaði að ég myndi endurgjalda það og vildi skilja eins vel við klúbbinn og ég gæti. Ég vildi leggja mig fram og reyna gera eins vel og hægt var úr tímabilinu þó að ég vissi að ég væri að fara. Það var aldrei spurning um að ég væri ekki að fara leggja mig fram eða eitthvað svoleiðis. Ég og klúbburinn tækluðum þetta þannig að ég væri leikmaður Vals út tímabilið eins og ekkert hefði í rauninni gerst. Mér finnst það hafa tekist nokkuð vel."

Haldist heill síðustu ár
Eftir að hafa misst af stórum hluta tímabilsins 2021 og nokkrum leikjum 2022 hefur Tryggvi spilað nánast alla leiki síðustu fjögur tímabil.

„Ég er mjög sáttur með hversu mikið ég hef getað verið til taks (e. availability) þessi síðustu fjögur tímabil. Á síðustu tveimur hef ég varla verið tekinn af velli þrátt fyrir mikið af leikjum í bikar og Evrópu. Ég hef náð að haldast heill síðustu tímabil eftir að hafa fótbrotnað í síðasta leik fyrir mót 2021 sem var ákveðið högg. Fyrir tveimur árum kláraði ég tímabilið ristarbrotinn og fór svo í aðgerð strax eftir tímabil. Fyrir utan það hefur lítið hrjáð mig og ég er mjög sáttur með að hafa haldist heill þessi síðustu ár."

Getur þá gengið sáttur frá borði
Lokaleikurinn framundan sem leikmaður Val, hvað viljið þið fá út úr leiknum gegn Stjörnunni?

„Það er bara sama og hefur verið, viljum reyna klára þetta tímabil eins vel og við getum. Það er líka fyrir mig persónulega að klára mína tíð hjá Val eins vel og ég get og ganga sáttur frá borði eftir síðasta leikinn."

Tryggvi Hrafn er í liði ársins hér á Fótbolti.net fyrir frammistöðu sína á tímabilinu 2026.
Býr yfir miklum hraða og mikilli tækni sem gerir varnarmönnum erfitt fyrir.

Býr yfir miklum hraða og mikilli tækni sem gerir varnarmönnum erfitt fyrir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Andri, bróðir Tryggva Hrafns, og Haraldur Ingólfsson, faðir Hauks Andra og Tryggva Hrafns.

Haukur Andri, bróðir Tryggva Hrafns, og Haraldur Ingólfsson, faðir Hauks Andra og Tryggva Hrafns.

Canon

Mynd: ÍA/Jón Gautur

Adam Ægir var einn af þeim sem höfðu lagt upp 13 mörk í efstu deild á einu tímabili miðað við tölfræði Óskars Ófeigs.

Adam Ægir var einn af þeim sem höfðu lagt upp 13 mörk í efstu deild á einu tímabili miðað við tölfræði Óskars Ófeigs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn með 16 stoðsendingar á tímabilinu.

Kominn með 16 stoðsendingar á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi var magnaður í einvíginu gegn Zrinjski.

Tryggvi var magnaður í einvíginu gegn Zrinjski.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég hugsaði að ég myndi endurgjalda það og vildi skilja eins vel við klúbbinn og ég gæti

Ég hugsaði að ég myndi endurgjalda það og vildi skilja eins vel við klúbbinn og ég gæti

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er samkvæmt því sem undirritaður kemst næst sá leikmaður í sögu frá nafnabreytingu í Bestu deildina (2022-26) sá leikmaður sem hefur lagt upp flest mörkin í deildinni.

Er samkvæmt því sem undirritaður kemst næst sá leikmaður í sögu frá nafnabreytingu í Bestu deildina (2022-26) sá leikmaður sem hefur lagt upp flest mörkin í deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég horfi í að reyna ná tveggja stafa tölu í báðu, þá er ég mjög sáttur.

Ég horfi í að reyna ná tveggja stafa tölu í báðu, þá er ég mjög sáttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þú vilt enda tímabilið vel, annars tekuru með þér neikvæðni og leiðindi inn í næsta tímabil

Þú vilt enda tímabilið vel, annars tekuru með þér neikvæðni og leiðindi inn í næsta tímabil

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.