Fotbolti.net
Er skrefið upp á við mögulegt? - „Ég sé Arsenal alveg taka þrjá bikara“

20.10.26

Er skrefið upp á við mögulegt? - „Ég sé Arsenal alveg taka þrjá bikara“

ÍVAR BJÖRGVINSSON

Arsenal hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en eftir sjö umferðir situr liðið í 2. sæti með 18 stig, þremur stigum á eftir Manchester City sem hefur unnið alla sína leiki. Arsenal varð Englandsmeistari í vor í fyrsta sinn í 22 ár og komst einnig í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið tapaði gegn PSG í vítaspyrnukeppni. Það voru því miklar væntingar gerðar til liðsins fyrir komandi tímabil en ljóst er að Mikel Arteta ætlar sér að halda áfram að bæta við titlum í safnið.

Arsenal hefur unnið sex af fyrstu sjö deildarleikjum tímabilsins og byrjaði liðið á að vinna Manchester City 3-0 í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Það er þó ekki allt fullkomið hjá Lundúnaliðinu en ákveðin vandamál hafa komið í ljós, sérstaklega í 3-0 tapi gegn Brighton í síðasta mánuði. Þrátt fyrir 1-0 sigur gegn Nottingham Forest á sunnudaginn hefur sóknarleikurinn ekki verið sannfærandi í öllum leikjum.

Fótbolti.net ræddi við Gunnar Birgisson, knattspyrnuþjálfara, sérfræðing og mikinn stuðningsmann Arsenal, um sumargluggann, fyrstu leiki tímabilsins og hvað framhaldið gæti borið í skauti sér.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.