Fotbolti.net
20.10.26 - 11:10
Kári Snorrason

Haukur Páll stefnir á endurkomu í þjálfun - „Viðurkenni að þetta var skrýtið sumar“

Tók sér árs frí frá þjálfun.

Tók sér árs frí frá þjálfun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Páll Sigurðsson hefur verið án þjálfunarstarfs síðan að honum var sagt upp störfum hjá Val undir lok síðasta tímabils.

Haukur hafði verið aðstoðarþjálfari Vals í tvö ár eftir að hann lagði skóna á hilluna. Fjórtán ár þar á undan var hann leikmaður með Val þar sem hann vann Íslandsmeistaratitilinn þrisvar og bikarinn tvisvar.

Hann var gestur í Innkastinu í gær og sagði þar stefna aftur út í þjálfun.
„Okkur var sagt upp í fyrra, það voru einhverjar þreifingar. Fyrirspurnir og fundir með einhverjum liðum. Ég tók þá ákvörðun að taka mér árs frí og prófa að lifa þessu eðlilega fjölskyldulífi. Þetta var smá skrýtið sumar, ég verð að viðurkenna það,“ sagði Haukur.

Aðspurður hvort fiðringurinn væri kominn aftur svaraði Haukur játandi. „Jú klárlega. Ég er búinn að fylgjast vel með utan frá. Sem er líka búið að vera gaman, en það hefur kitlað að vera úti á velli í sumar. Ég held að fiðringurinn fari ekki úr einstaklingum sem hafa verið svona lengi í þessu og spilað á hæsta stigi á Íslandi.

Það munu örugglega einhverjar hreyfingar að fara af stað núna. Maður mun klárlega taka við símtölum ef þau koma,“
sagði Haukur jafnframt.
Var aðstoðarþjálfari Vals í tvö ár.

Var aðstoðarþjálfari Vals í tvö ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.