05.09.22 - 21:56
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Sigurmarkið kom í blálokin

Shon Weissman skoraði á annarri mínútu í uppbótartíma síðari hálfleiks

Mynd: EPA

Shon Weissman skoraði á annarri mínútu í uppbótartíma síðari hálfleiks

Mynd: EPA
Valladolid 1 - 0 Almeria
1-0 Shon Weissman ('90 )
1-0 Shon Weissman ('90 )
Real Valladolid vann fyrsta leik sinn á tímabilinu í La Liga er liðið marði Almería, 1-0, á heimavelli í kvöld.
Valladolid hafði tapað tveimur og gert eitt jafntefli fyrir leikinn í kvöld á meðan Almería hafði unnið einn, gert eitt jafntefli og tapað einum.
Sigurmark Valladolid kom á 90. mínútu leiksins en það var Shon Weissman sem gerði það.
Kike Perez átti lúmska sendingu inn í teiginn, boltinn fór af varnarmanni og þaðan til Weissman sem potaði boltanum framhjá markverði Almería og í netið.
Valladolid og Almería eru nú jöfn að stigum eða með 4 talsins en Almería er með betri markatölu. Almería er í 13. sæti og Valladolid í 16. sæti.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 11 | +34 | 30 |
| 2 | Atletico Madrid | 11 | +14 | 28 |
| 3 | Real Madrid | 11 | +18 | 27 |
| 4 | Betis | 11 | +3 | 23 |
| 5 | Real Sociedad | 11 | 0 | 19 |
| 6 | Sevilla | 11 | -2 | 17 |
| 7 | Athletic | 10 | +4 | 15 |
| 8 | Villarreal | 11 | 0 | 12 |
| 9 | Celta | 11 | 0 | 12 |
| 10 | Alaves | 11 | -2 | 12 |
| 11 | Vallecano | 10 | -5 | 12 |
| 12 | Getafe | 11 | -8 | 12 |
| 13 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Espanyol | 11 | -1 | 11 |
| 15 | Osasuna | 10 | -10 | 11 |
| 16 | Racing Santander | 11 | -14 | 11 |
| 17 | Elche | 11 | -4 | 10 |
| 18 | Levante | 11 | -5 | 10 |
| 19 | Valencia | 11 | -9 | 9 |
| 20 | Malaga | 11 | -13 | 5 |