Fotbolti.net
05.09.22 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tók strauið úr stúkunni og réðst á leikmann Besiktas

Dele Alli skoraði í leiknum

Dele Alli skoraði í leiknum

Canon

Mynd: Getty Images

Það átti sér stað furðulegt atvik í leik Ankaragucu og Besiktas í tyrknesku úrvalsdeildinni í gær. Besiktast vann leikinn 2-3 og Dele Alli skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið og fyrsta deildarmarkið í rúmt ár. En það var ekki það sem var furðulegt.
Það var atvik í lok leiks eftir að bæði lið höfðu fengið rautt spjald. Áhorfandi kom sér inn á völlinn og tók strauið í átt að leikmönnum Besiktas.

Áhorfandinn ætlaði að ná einu fljúgandi kung-fú sparki á Salih Ucan en sem betur fyrir Ucan lenti sparkið ekki fullkomlega.

Áhorfandinn stökk upp, fór utan í Cenk Tosun og kom fæti í Ucan. Strax í kjölfarið var áhorfandanum ýtt í jörðina og þá var gæslan mætt til að koma í veg fyrir frekari uppákomu. Atvikið má sjá hér að neðan.

Besiktas er á toppi deildarinnar sem stendur með þrettán stig eftir fimm leiki. Alli er á láni hjá liðinu frá Everton út tímabilið.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.