Fotbolti.net
05.09.26 - 20:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alex ótrúlega jákvæður þrátt fyrir farsakennt tímabil - „Finnst alls ekkert skrítið við þetta"

,,Met stöðuna hjá Stjörnunni ótrúlega góða"

Alex gat ekki spilað framan af tímabili vegn álagsmeiðsla.

Alex gat ekki spilað framan af tímabili vegn álagsmeiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjörnumaðurinn Alex Þór Hauksson spilaði í vikunni sinn 200. deildarleik á ferlinum. Hann er 26 ára miðjumaður sem uppalinn er hjá Álftanesi og hefur í meistaraflokki líka spilað með Stjörnunni, Öster og KR.

Það var Víðir Sigurðsson sem vakti athygli á því hér í pistli á Fótbolti.net og rifjaði upp að Alex hefði spilað fyrsta leikinn sinn fyrir 14 árum, þá fyrir Álftanes.

200. leikurinn var sigurleikur gegn grönnunum í Breiðabliki og var það 10. leikur Alex á tímabilinu.

Fótbolti.net ræddi við kappann um áfangann, tímabilið og komandi leik gegn ÍBV sem fram fer á morgun.
Var ekki meðvitaður um áfangann
Víðir vakti athygli á því að þú hefðir á mánudag spilað þinn 200. deildarleik á ferlinum, varstu meðvitaður um það?

„Víðir er náttúrulega algjör snillingur og skemmtilegt að hann hefur auga með svona hlutum. Ég var allavega ekki meðvitaður um þetta en er klárlega ánægður með það hvernig 200 leikurinn fór. Það eru alltaf skemmtilegir leikir við Breiðablik og mikilvægt fyrir okkur að taka þrjú stig á erfiðum útivelli."

Leitaði hugurinn til baka á fyrsta leikinn með Álftanesi?

„Mér barst þetta ekki til eyrna fyrr en 2 dögum eftir leik og þá jú renndi maður lauslega yfir farinn veg. Gaman að hugsa til fyrsta leiksins með Álftanesi sem kom fyrir 14 árum síðan og síðan fyrsta leiknum með Stjörnunni sem kom nokkrum árum síðar," segir Alex.

Ótrúlega lærdómsríkt tímabil
Tímabilið í ár, hvernig sér það við þér?

„Tímabilið hefur verið ótrúlega lærdómsríkt bæði fyrir liðið og mig persónulega. Tilfinningin að vera meiddur þegar illa gengur er alls ekki góð því maður vill auðvitað hjálpa liðinu eins mikið og hægt er og vera til taks fyrir þá þjálfara sem eru hverju sinni. Ég er hins vegar mjög ánægður með frammistöðu liðsins upp á síðkastið og finnst hún sýna hvað býr í þessum hópi."

Hafa lært fullt af þjálfurunum
Hefur þú einhverja skoðun á þeim ákvörðunum að láta Jökul og Jón Þór fara frá félaginu í sumar?

„Ég er með það hugarfar að gera allt sem í mínu valdi stendur til að ná árangri fyrir Stjörnuna og ég veit að allir þeir sem eru að leggja sitt á vogarskálarnar hugsa eins. Þannig ég trúi því að við höfum lært fullt af þeim sem hafa þjálfað okkur á þessu tímabili og verðum að nýta okkur það í framhaldinu."

Hluti af þessu að taka á móti umfjölluninni
Hvernig er að vera hjá félagi þegar umfjöllun er ekki sú jákvæðasta og félagið á milli tannanna á fólki út af neikvæðum hlutum?

„Það er ótvírætt skemmtilegra þegar umfjöllun er jákvæð og þegar vel gengur en ætli það sé ekki hluti af þessu líka að taka á móti umfjöllun sem hefur átt sér stað. Það er bara í okkar höndum að búa til jákvæða orku með því að standa okkur vel og mér finnst það hafa verið að raungerast í seinustu tveimur leikjum. Finnst reyndar líka frábær punktur sem Óskar Smári kom með að það eru frábærir hlutir að gerast í félaginu. Stelpurnar hafa verið að standa sig vel, ungir og efnilegir Stjörnumenn að fara erlendis að spila og svo er aðstaðan að verða betri með nýju gervigrasi."
Óskar segir stöðuna ekki eins hræðilega og rætt er um: Stjarnan á líka kvennalið
TENGT EFNI

Óskar segir stöðuna ekki eins hræðilega og rætt er um: Stjarnan á líka kvennalið


Allt til alls í Garðabænum
Hvernig metur þú stöðuna hjá Stjörnunni í dag?

„Met stöðuna hjá Stjörnunni ótrúlega góða. Erum með lang bestu aðstöðuna á Íslandi. Leikmannahóp sem hefur öll heimsins gæði og hefur verið að sýna mikinn stíganda upp á síðkastið. Það eru metnaðarfullir einstaklingar allt í kring og stuðningsmenn í hæsta gæðaflokki þannig að það er allt til alls í Garðabænum."

Vilja búa til meðbyr
Stjarnan hefur núna unnið fjóra af síðustu fimm leikjum og mun með sigri á morgun enda í efri hluta deildarinnar. Er mikilvægt að enda í efri hlutanum?

„Já, við stefnum klárlega á efri hlutann og það skiptir okkur miklu máli. Viljum enda þetta mót eins vel og hægt er og búa okkur þannig til meðbyr. Ég tel að lykilatriðið til að ná í sigur sé að byggja á það sem við höfum verið að gera. Vera með hátt orkustig, njóta þess að spila og gefa allt sem við eigum í leikinn."

Alls ekkert skrítið
Spilið inni í Miðgarði, hvernig er að spila þar?

„Það er undarlegt að spila ekki heimaleikina á Samsung vellinum en alveg skemmtilegt að nota Miðgarð á meðan við erum að skipta um gervigras."

Er forskot fyrir ykkur að spila þar inni?

„Ég held að öll lið séu vön því að leika innandyra þannig það ætti ekki að vera neitt forskot þannig séð."

Ef þú horfir á þetta utan frá, finnst þér skrítið að það megi spila þar í efstu deild?

„Mér finnst alls ekkert skrítið við þetta. Vel gert hjá félaginu að ráðast í þessar framkvæmdir til að vera með sem besta aðstöðu og ég tel að það séu fleiri félög sem mættu taka sér Stjörnuna til fyrirmyndar í þessu."

Glímdi við langdregin og leiðinleg meiðsli
Þitt persónulega tímabil, varst meiddur framan af, hvað var að hrjá þig?

„Þetta hefur verið öðruvísi tímabil en maður er vanur. Æfðum mjög stíft í byrjun og svo í febrúar lendi ég einmitt í meiðslum sem voru langdregin og leiðinleg. Álagsmeiðsli á sin sem liggur aftan í læri við festuna. Veit ekki alveg hvernig það kom til en ég reyndi að æfa og spilaði nokkra leiki á þessu sem var ekki það sniðugasta. Síðan finn ég að þetta er ekkert að fara og ég get ekki beitt líkamanum nægilega vel þannig það þyrfti að laga þetta."

„Ég var þannig séð ekkert með fyrri partinn af tímabilinu en þá er bara að reyna að gefa af sér allt sem maður hefur að gefa til þess að hjálpa liðinu. Það var síðan á miðju tímabili þegar við vorum í Evrópu sem að þetta fór að lagast og þá var svolítið erfitt að byggja sig upp. Stutt á milli leikja og mikið í gangi."

„Seinustu vikur hafa samt verið mjög góðar fyrir mig þar sem við höfum getað æft þétt og aðeins lengra á milli leikja þannig ég finn mig verða betri með hverri vikunni sem líður."


Allir leikir skipta máli
Hvað viltu fá út úr restinni á tímabilinu?

„Slatti eftir af tímabilinu og ég vil að við nýtum það eins vel og hægt er og sýnum hvað býr í okkur. Allir leikir skipta máli þegar þú spilar fyrir Stjörnuna og við ætlum að sýna það."
Síðasta mánudag spilaði hann sinn 200. deildarleik á tímabilinu.

Síðasta mánudag spilaði hann sinn 200. deildarleik á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er hins vegar mjög ánægður með frammistöðu liðsins upp á síðkastið og finnst hún sýna hvað býr í þessum hópi

Ég er hins vegar mjög ánægður með frammistöðu liðsins upp á síðkastið og finnst hún sýna hvað býr í þessum hópi

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég held að öll lið séu vön því að leika innandyra þannig það ætti ekki að vera neitt forskot þannig séð

Ég held að öll lið séu vön því að leika innandyra þannig það ætti ekki að vera neitt forskot þannig séð

Canon

Mynd: Aðsend

Jökull var látinn fara í júní.

Jökull var látinn fara í júní.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

jón Þór var svo látinn fara í síðasta mánuði.

jón Þór var svo látinn fara í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex að koma inn á með Álftanesi 2012.

Alex að koma inn á með Álftanesi 2012.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Valur Böðvarsson

Með U17 landsliðinu árið 2015.

Með U17 landsliðinu árið 2015.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék með Öster 2021-23.

Lék með Öster 2021-23.

Canon

Mynd: Öster

Og KR 2024.

Og KR 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík22-528
6ÍA21-427
7Valur22-627
8Stjarnan21-827
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.