Fotbolti.net
05.09.26 - 19:49
Guðmundur Jónasson

Hamrarnir og Skallagrímur upp í 4. deild

Hamrarnir að fagna sigri á Utandeildinni í fyrra

Hamrarnir að fagna sigri á Utandeildinni í fyrra

Canon

Mynd: Ármann Hinrik

Hamrarnir og Skallagrímur tryggðu sig upp fyrr í dag með sigrum eftir framlengda leiki.

Skallagrímur 4 - 1 Stokkseyri

1-0 Alejandro Serrallo Gomez ('4)

2-0 Ari Styrmir Almarsson ('52 )

2-1 Sindri Þór Arnarson ('90 )

3-1 Snorri Kristleifsson ('102 )

4-1 Carlos Javier Castellano ('104 )

Skallagrímur tók á móti Stokkseyri í seinni undanúrslitaleik í 5.deild karla fyrr í dag. Fyrri leikur liðanna endaði 2-1 Stokkseyri í vil. Skallagrímur komst yfir strax á 4. mínútu leiksins eftir góða vítaspyrnu frá Alejandro Gomez, engin fleiri mörk voru skoruð í fyrri hálfleik og staðan því 1-0 í hálfleik og 2-2 í einvíginu. Skallagrímur byrjuðu seinni hálfleikinn vel og komust í 2-0 á 52. mínútu með marki frá Ara Styrmi Almarssyni, það leit allt út fyrir að Skallagrímur væri að fara klára þetta einvígi í venjulegum leiktíma en þá mætti Sindri Þór Arnarsson á 94. mínútu og minnkaði muninn fyrir Stokkseyri og kom leiknum í framlengingu. Snorri Kristleifsson og Carlos Javier Castellano skoruðu svo með stuttu millibili og urðu lokatölur 4-1 fyrir Skallagrím og sæti í 4.deild að ári því tryggt. 

Hamrarnir 3 - 2 Smári

1-0 Tómas Ernir Guðmundsson ('22 )

1-1 Heiðar Ingi Þórisson ('56 )

2-1 Gauti Guðmann ('108 )

3-1 Helgi Már Þorvaldsson ('113 )

3-2 Mikael Breki Salmon ('120 )

Hamrarnir tóku á móti Smára á Greifavellinum í hinum undanúrslitaleiknum í 5.deild karla, fyrri leikur liðanna endaði 2-2 og því mjög spennandi leikur framundan. Smári byrjuðu leikinn sterkt en svo tóku Hamrarnir yfir leikinn og komust í 1-0 á 22. mínútu með góðu marki frá Tómasi Erni Guðmundssyni, í stöðunni 1-0 kemur Kári Gunnarsson Hömrunum í 2-0 en markið dæmt af og voru Hamrarnir ekki sáttir með þá dómgæslu og staðan í hálfleik því 1-0 fyrir Hömrunum. Smári byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og náðu að jafna leikinn á 56. mínútu eftir vel útfærða aukaspyrnu og lokatölur eftir venjulegan leiktíma 1-1 og 3-3 í einvíginu. Hamrarnir byrjuðu framlenginguna mun betur en skoruðu ekki fyrr en í byrjun seinni hálfleiks í framlengingunni þar sem Gauti Guðmann gerði vel og kom Hömrunum í 2-1, Helgi Már Þorvaldsson var svo á ferðinni á 113. mínútu og kom Hömrunum í 3-1 og í mjög þæginlega stöðu. Smáramenn klóruðu svo aðeins í bakkann með góðu marki á 122. mínútu og lokatölur því 3-2 og Hamrarnir búnir að tryggja sér sæti í 4.deild.

Hamrarnir unnu Utandeildina í fyrra og er þetta því annað árið í röð sem þeir tryggja sig upp um deild.

Úrslitaleikirnir í 5.deild karla eru skráðir á fimmtudag 10. september en verða líklegast leiknir um næstu helgi og þá kemur í ljós hvort Skallagrímur eða Hamrarnir taka bikarinn með heim og hvort Stokkseyri eða Smári taka bronsið.

Fótbolti.net óska Hömrunum og Skallagrím til hamingju!

Mynd: Skallagrímur
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.