Fotbolti.net
05.10.19 - 11:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skelfileg mistök Lloris - Fór meiddur af velli

Skelfileg mistök Lloris - Fór meiddur af velli
Canon

Mynd: Getty Images

Brighton er komið yfir gegn Tottenham í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni.

Neal Maupay skoraði markið á 3. mínútu leiksins eftir að Hugo Lloris, markvörður Tottenham, mistókst að grípa almennilega fyrirgjöf/skottilraun.

Lloris missti boltann frá sér og Maupay setti boltann yfir línuna af stuttu færi. Lloris meiddist illa í fallinu og varð að yfirgefa völlinn. Paulo Gazzaniga mun verja mark Tottenham það sem eftir lifir leiks.

Þetta eru ekki einu mistök Lloris á tímabilinu en um síðustu helgi gaf hann mark gegn Southampton.
Tottenham tapaði illa gegn Bayern, 2-7, á heimavelli í vikunni og leikurinn í dag byrjar ekki vel.

Myndband af atvikinu má sjá hér.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.