05.10.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Arsenal vill Yildiz - Scott vekur áhuga Real Madrid

Kenan Yildiz, leikmaður Juventus.

Mynd: EPA

Alex Scott, miðjumaður Bournemouth.

Mynd: EPA

Kenan Yildiz, leikmaður Juventus.

Mynd: EPA

Tyrknesk stjarna orðuð við Arsenal, miðjumaður Bournemouth er feikilega eftirsóttur og Liverpool hefur áhuga á leikmanni Nottingham Forest. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.
Arsenal hefur áhuga á að fá tyrkneska vængmanninn Kenan Yildiz (21) frá Juventus en Bayern München og Real Madrid gætu veitt harða samkeppni. (Corriere dello Sport)
Real Madrid er að íhuga að taka þátt í baráttunni um Alex Scott (23) eftir að hafa fylgst náið með þessum eftirsótta miðjumanni Bournemouth og enska landsliðsins undanfarnar vikur. (Teamtalk)
Chelsea er líklegast til að fá Scott frá Bournemouth en Liverpool og Arsenal hafa einnig áhuga. (Telegraph)
Real Betis mun hafna öllum fyrirspurnum í írska framherjann Troy Parrott (24) sem er með 85 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Tottenham. (Estadio Deportivo)
Fjöldi félaga í ensku úrvalsdeildinni fylgist með varnarmiðjumanninum Lucien Agoume (24) hjá Sevilla en riftunarákvæði í samningi hans er um 35 milljónir punda. (AS)
Liverpool og Chelsea hafa blandað sér í baráttuna um brasilíska varnarmanninn Murillo (24) hjá Nottingham Forest en leikmaðurinn fær ekki að yfirgefa City Ground í janúar. (Football Insider)
Folarin Balogun (25), framherji Mónakó, hefur enn áhuga á að fara í ensku úrvalsdeildina þrátt fyrir að skipti bandaríska landsliðsmannsins til Everton hafi runnið út í sandinn á lokadegi gluggans. (Talksport)
Barcelona og Inter eru meðal félaga sem eru að fylgjast með bosníska varnarmanninum Tarik Muharemovic (23) en Leeds United hefur engin áform um að selja leikmanninn sem var keyptur frá Sassuolo fyrir 34 milljónir punda í sumar. (Football Insider)
AC Milan gæti reynt að fá brasilíska framherjann Endrick (20) frá Real Madrid á láni í janúar, en það verður engin ákvæði í samningnum um möguleg framtíðarkaup. (Gazzetta dello Sport)
Fyrrverandi stjóri Chelsea og Tottenham, Antonio Conte, nýtur þess að slaka á þrátt fyrir að vera orðaður við endurkomu til stjórastarfsins hjá Manchester United og Juventus. (Football Italia)