Fotbolti.net
05.10.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Hvatinn minn er ekki bara farinn að minnka, hann er horfinn"

Jannik Vestergaard hér með Cristiano Ronaldo.

Jannik Vestergaard hér með Cristiano Ronaldo.

Canon

Mynd: EPA

Danski miðvörðurinn Jannik Vestergaard hefur ákveðið að leggja fótboltaskóna á hilluna, 34 ára að aldri.
Vestergaard greindi frá ákvörðun sinni í viðtali við danska miðilinn Politiken. Hann hefur verið án félags síðan í sumar þegar samningi hans við Leicester City var rift.

„Ég er farinn að finna fyrir ákveðinni þreytu. Hvatinn minn er ekki bara farinn að minnka, hann er horfinn. Það er rétt fyrir mig að hætta núna,“ sagði Vestergaard.

Vestergaard átti langan feril í þýsku Bundesligunni þar sem hann lék með Hoffenheim, Werder Bremen og Borussia Mönchengladbach. Alls spilaði hann 185 leiki í deildinni og skoraði 14 mörk.

Hann hélt síðan til Englands og lék með Southampton áður en hann gekk í raðir Leicester árið 2021. Hann lék 118 leiki fyrir Leicester og var í liðinu sem vann Championship-deildina tímabilið 2023/24.

Vestergaard lék einnig 59 landsleiki fyrir Danmörku og skoraði þrjú mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.