22.11.26 - 12:22
Brynjar Ingi Erluson
Rekinn eftir níunda tap tímabilsins (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enska B-deildarfélagið Watford hefur rekið Alessio Dionisi úr starfi eftir slæmt gengi liðsins á tímabilinu. Félagið staðfesti ákvörðunina með tilkynningu í dag.
Dionisi tók við Watford í sumar og skrifaði undir tveggja ára samning, en liðið hefur farið afleitlega af stað á tímabilinu.
Watford tapaði sínum níunda deildarleik í gær þegar liðið steinlá 4-0 gegn Sheffield United. Þar fylltist mælirinn hjá stjórnarmönnum félagsins sem hafa nú ákveðið að láta Dionisi taka poka sinn.
„Við þökkum Alessio og þjálfarateymi hans fyrir fagmennskuna og þeirra framlag til félagsins. Eins og stuðningsmenn hafa séð er Alessio frábær náungi og við óskum honum alls hins besta í framtíðinni. Leitin að nýjum þjálfara er þegar hafin og við vonumst til að geta tilkynnt um arftaka hans fljótlega,“ sagði Luke Dowling, yfirmaður íþróttamála hjá Watford.
Watford situr í 21. sæti deildarinnar með 15 stig, fimm stigum fyrir ofan fallsæti.

Watford FC can confirm Alessio Dionisi has departed his role as Head Coach of the first team.
— Watford Football Club (@WatfordFC) November 22, 2026
Full statement below ????
https://t.co/twY2sxq6bj https://t.co/p0eo2tMkaH
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Middlesbrough | 16 | +13 | 32 |
| 2 | Stoke City | 16 | +7 | 32 |
| 3 | Wolves | 16 | +9 | 31 |
| 4 | Birmingham | 16 | +13 | 29 |
| 5 | West Brom | 16 | +8 | 29 |
| 6 | Southampton | 16 | +16 | 27 |
| 7 | QPR | 16 | +7 | 27 |
| 8 | Swansea | 16 | +4 | 27 |
| 9 | Sheffield Utd | 16 | +6 | 25 |
| 10 | West Ham | 16 | +14 | 24 |
| 11 | Norwich | 16 | +9 | 24 |
| 12 | Portsmouth | 16 | +2 | 23 |
| 13 | Blackburn | 16 | -1 | 22 |
| 14 | Wrexham | 16 | -1 | 21 |
| 15 | Cardiff City | 16 | -1 | 18 |
| 16 | Millwall | 16 | -5 | 18 |
| 17 | Bolton | 16 | -9 | 18 |
| 18 | Bristol City | 16 | -10 | 18 |
| 19 | Charlton Athletic | 16 | -11 | 17 |
| 20 | Lincoln City | 16 | -12 | 15 |
| 21 | Watford | 16 | -14 | 15 |
| 22 | Burnley | 16 | -9 | 11 |
| 23 | Derby County | 16 | -18 | 10 |
| 24 | Preston NE | 16 | -17 | 9 |