05.10.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Pogba er fyrirmynd vonarstjörnu Frakklands

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Varnarmaðurinn ungi Jérémy Jacquet hefur fangað fyrirsagnirnar með frábærum frammistöðum í upphafsleikjum Zinedine Zidane við stjórn franska landsliðsins.

TENGT EFNI
Zidane hrósar Jacquet - „Búinn að segja það fjórum sinnum"
Zidane er meðal þeirra sem hafa hrósað Jacquet í hástert á dögunum og svaraði Jacquet spurningum frá Telefoot fyrir nágrannaslag gegn Belgíu í Þjóðadeildinni sem fer fram í kvöld. Þar ræddi hann meðal annars um Paul Pogba og Virgil van Dijk.
„Paul Pogba hefur alltaf verið fyrirmyndin mín og er það enn, ég elskaði að horfa á hann spila," sagði Jacquet meðal annars og var svo spurður út í lífið í Liverpool.
„Ég er svo ánægður að spila við hliðina á Virgil van Dijk, það er mjög sérstakt. Hann er ótrúlegur varnarmaður. Það eru ekki til margir varnarmenn sem hafa verið í sama gæðaflokki og hann."
Frakkar eru með ógnarsterkt landslið og eru fótboltaunnendur gríðarlega spenntir að fylgjast með gengi liðsins undir stjórn Zidane sem náði sögulegum árangri á stjórnartíð sinni hjá Real Madrid. Zidane segist sjá líkindi með þjálfarastörfunum hjá Real og landsliðinu, sem eru hans einu þjálfarastörf á ferlinum að undanskildu akademíuliði Real Madrid.
„Það er sama geðveiki og sömu kröfur sem fylgja þjálfarastarfinu hjá Frakklandi og Real Madrid. Ég elska það," sagði Zidane.
„Þegar ég var hjá Real þá stoppaði geðveikin aldrei, en ég elskaði það."