05.10.26 - 10:16
Elvar Geir Magnússon
U21 liðið ekki enn farið til Færeyja - Frestun á flugi dagsins

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frá Færeyjum.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska U21 landsliðið er enn ekki komið til Færeyja en liðið átti upphaflega að fara í gær en fluginu var aflýst þar sem ekki var hægt að lenda vegna veðurs.
Hópurinn vonast til þess að komast til Færeyja í dag en veðrið er enn að hafa truflandi áhrif.
Liðið ætlaði að fljúga með Atlantic Airways klukkan 11:45 en búið er að færa flugtímann tvisvar og er nú skráður brottfaratími 13:40.

TENGT EFNI
U21 komst ekki til Færeyja
„Við vitum ekkert eins og staðan er akkúrat núna. Staðan er ekkert skárri veðurfarslega séð held ég. En það verður bara að koma í ljós hvað þessir snillingar geta gert," sagði Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, við Vísi í gær.
Framundan er gríðarlega mikilvægur leikur við Færeyja um annað sæti riðilsins en hann á að fara fram á morgun.
Ísland þarf að vinna Færeyjar og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland. Gangi það eftir tryggir Ísland sér sæti í umspilið og færist því nær því að komast á Evrópumótið í þriðja sinn í sögunni. Færeyjar eiga ekki lengur möguleika í riðlinum.