Víkingur fær tæplega 242 milljónir króna í Evróputekjur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur fór alla leið í umspilið í forkeppni Sambandsdeildarinnar í lok ágúst en laut í lægra haldi gegn bosníska liðinu Borac Banja Luka. Það mun því ekkert lið spila í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar þetta árið. Víkingur hefði getað tryggt sér nokkur hundruð milljónir króna með því að komast inn keppnina en þrátt fyrir fær félagið nokkuð veglegar Evróputekjur.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 4. október á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Víkingur hóf sitt Evrópuævintýri á því að sigra ungversku meistarana ETO Györ í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Næst mætti Víkingur ísraelsku meisturunum Hapoel Beer Sheva og var nálægt því að sigra það einvígi. Allt kom fyrir ekki og Víkingur mætti næst svissnesku meisturunum í FC Thun í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Því næst tók við umspilseinvígi gegn bosníska liðinu Borac Banja Luka, sem Víkingur tapaði svo á endanum.
Fyrir þessi fjögur einvígi sem Víkingur fór í fékk liðið samtals 100 milljónir króna, tæplega 25 milljónir króna fyrir hvert einvígi. Víkingur fékk svo 750 þúsund evrur í útsláttarbónus fyrir það að detta út í umspili forkeppni Sambandsdeildarinnar. Þá fékk Víkingur einnig tæplega 37 milljónir króna fyrir það að vera deildarmeistari sem komst ekki inn í félagsliðakeppnir UEFA. Heilt yfir fékk Víkingur því tæplega 242 milljónir króna. Til samanburðar var velta Víkings 622 milljónir króna árið 2025.

