Fotbolti.net
05.11.19 - 22:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Milner: Leiðinlegt að segja þetta en það er satt

Milner: Leiðinlegt að segja þetta en það er satt
Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Mér fannst við góðir á ákveðnum augnablikum,"</I> sagði James Milner, fyrirliði Liverpool í kvöld, er liðið lagði belgíska liðið Genk að velli í Meistaradeildinni.

Leikurinn endaði með 2-1 sigri Liverpool. Alex Oxlade-Chamberlain skoraði sigurmarkið snemma í seinni hálfleik.
„Þetta hefði getað verið mikið þægilegra, en þeir gerðu okkur erfitt fyrir. Ég er bara ánægður að við skyldum ná í góð úrslit."

„Allir leikir eru erfiðir í Meistaradeildinni. Það er leiðinlegt að segja þetta, en það er satt. Við verðum að klára okkar. Við erum núna í góðri stöðu."

Liverpool er á toppnum í E-riðli með níu stig eftir fjóra leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.