Fotbolti.net
05.11.26 - 17:59
Elvar Geir Magnússon

Emery fær nýjan samning og enn frekari völd

Emery fær nýjan samning og enn frekari völd
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, er nálægt því að gera nýjan og lengri samning sem mun veita honum enn meiri völd í ákvarðanatökum um framtíðarþróun liðsins.
Emery átti viðræður við stjórnendur félagsins og vilji allra aðila er að framlengja dvöl hans á Villa Park.

Emery vill hafa völd í ýmsum ákvarðanatökum og viðræður standa yfir um nokkur atriði, sem talið er formsatriði að klára. Nýi samningurinn verður þó ólíklega kynntur fyrir helgi.

Undir stjórn Emery vann Villa Evrópudeildina í maí, fyrsta stóra titil Villa í 30 ár, og hann fagnaði fjögurra ára starfsafmæli sínu hjá félaginu í síðasta mánuði. Hann hefur umbreytt liðinu í stjóratíð sinni.

Spánverjinn hefur verið orðaður við Manchester United, sem Villa mætir á Old Trafford á sunnudag, ef United rekur Michael Carrick. Núgildandi samningur Emery er til ársins 2029 en hann er nálægt því að skrifa undir nýjan langtímasamning eins og áður segir.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.