Colin Bell, fyrrum leikmaður Manchester City, lést í gær 74 ára að aldri eftir stutt veikindi.
Bell skoraði 153 mörk í 501 leik með Manchester City frá 1966 til 1979 og hann er í miklum metum hjá félaginu.
Bell vann meðal annars ensku deildina og bikarinn á tíma sínum hjá City.
Bell skoraði 153 mörk í 501 leik með Manchester City frá 1966 til 1979 og hann er í miklum metum hjá félaginu.
Bell vann meðal annars ensku deildina og bikarinn á tíma sínum hjá City.
Leikmenn Manchester City munu minnast Bell fyrir undanúrslitaleikinn gegn Manchester United í enska deildabikarnum í kvöld.
Leikmenn liðsins munu ganga út á völlinn í treyju númer 8 sem verður merkt með nafni Bell.
Athugasemdir