Ýmir Már Geirsson hefur framlengt samning sinn við KA um tvö ár en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Ýmir sem er 23 ára gamall er uppalinn hjá félaginu og hefur leikið alls 34 meistaraflokksleiki í deild og bikar.
Á síðasta tímabili lék Ýmir fjóra leiki fyrir KA en hann stundar háskólanám í Vermont í Bandaríkjunum og missti því af stórum hluta sumarsins hjá KA.
„Það eru virkilega góð tíðindi að halda Ými innan okkar raða enda er hann öflugur og metnaðarfullur leikmaður sem verður gaman að fylgjast með á komandi sumri," segir á heimasíðu KA.
Athugasemdir