Fotbolti.net
06.01.26 - 14:32
Elvar Geir Magnússon

Amorim og Martínez rifust heiftarlega á æfingasvæðinu

Lisandro Martínez.

Lisandro Martínez.

Canon

Mynd: EPA

Daily Mail greinir frá því að Rúben Amorim hafi rifist heiftarlega við varnarmanninn Lisandro Martínez á æfingasvæði Manchester United fyrir nokkrum dögum.

Amorim var rekinn í gær en ákvörðunin um brottreksturinn var tekinn eftir að upp úr sauð á fundi hans með Jason Wilcox, yfirmanni fótboltamála, síðasta föstudag.

Spennan á æfingasvæði Manchester United hefur þó greinilega verið að hitna í einhvern tíma.

Martínez kom af meiðslalistanum í byrjun desember og var víst pirraður yfir því að hafa verið geymdur á bekknum þegar hann taldi sig tilbúinn að leggja sitt á vogarskálarnar á vellinum.

Hann kvartaði við Amorim á æfingasvæðinu og hófst þá heiftarlegt rifrildi.
Telegraph: Búið að ákveða að reka Amorim fyrir Leeds leikinn
TENGT EFNI

Telegraph: Búið að ákveða að reka Amorim fyrir Leeds leikinn

Amorim hefur lent upp á kant við stór nöfn hjá Manchester United; þar má nefna Marcus Rashford, Jadon Sancho, Antony, Tyrell Malacia og Kobbie Mainoo.

Amorim er sagður hafa brugðist ókvæða við á fundinum með Wilcox á fimmtudaginn þegar Wilcox rætti um leikaðferð United.
Amorim og Martínez rifust heiftarlega á æfingasvæðinu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.