Í Þungavigtinni í gær var Kristófer Ingi Kristinsson orðaður við Val. Kristófer er 26 ára sóknarmaður sem verður samningslaus í lok árs. Í þættinum var slúðrað um að Valur vildi gera hann að einum launahæsta leikmanni deildarinnar. Sú umræða var tengd við þann orðróm að Tryggvi Hrafn Haraldsson, sóknarmaður Vals, yrði næsti leikmaður sem ÍA myndi kaupa í vetur.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Valur áhuga á Kristófer en ekki hafa fengist svör hvort að Hlíðarendafélagið hafi lagt fram formlegt tilboð í leikmanninn. Samningur hans við Breiðablik rennur út 31. desember og mega önnur félög ræða við hann frá og með 1. júlí. Fótbolti.net fjallaði um áhuga Vals á Kristófer seinni hluta árs 2024 en hann ákvað þá að framlengja samning sinn við Breiðablik.

Í Þungavigtinni var einnig sagt frá því að Breiðablik hefði borist tilboð í Kristófer frá ónefndu félagi í Katar. Sagt var frá því að Kristófer hefðu staðið til boða góð laun í Katar en Breiðablik hefði hafnað tilboðinu. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var áhugi undir lok félagaskiptagluggans í Katar á sóknarmanninum en ekkert formlegt tilboð barst í hann.
Kristófer sýndi magnaða takta í sigri Breiðabliks gegn Stjörnunni síðasta sumar þegar hann skoraði frábæra þrennu og var besti maður vallarins. Hann hefur eflaust viljað ná að sýna álíka frammistöðu oftar frá því að hann kom í Breiðablik sumarið 2023. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn og hefur hlutverkið einnig verið takmarkað. Á síðasta tímabili skoraði hann fimm mörk í tíu byrjunarliðsleikjum í Bestu deildinni og tíu sinnum kom hann inn á.
Samkvæmt Transfermarkt hefur Kristófer skorað 14 mörk í 65 keppnisleikjum fyrir Breiðablik og lagt upp tvö mörk.
Kristófer er uppalinn hjá Stjörnunni og hefur á ferlinum spilað með Willem II, varaliði PSV, Grenoble, SönderjyskE, VVV-Venlo. Hann lék á sínum tíma 33 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði tvö mörk.
Athugasemdir