Fotbolti.net
06.04.22 - 15:09
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Belgrad

Steini Halldórs: Öðruvísi verkefni en áhugavert

Auglýsing
Þorsteinn Halldórsson fylgist með æfingu í dag.

Þorsteinn Halldórsson fylgist með æfingu í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, ræddi við Fótbolta.net í Serbíu. Á morgun leikur Ísland gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM en leikurinn fer fram í Serbíu þar sem UEFA hefur bannað Hvít-Rússum að spila í heimalandinu.
„Þetta eru skemmtilegar aðstæður, öðruvísi en áhugavert og spennandi verkefni," segir Þorsteinn en leikurinn fer fram á heimavelli Vozdovac í Belgrad, Um er að ræða gervigrasvöll sem er staðsettur ofan á verslunarmiðstöð.

Hvíta-Rússland er með fjögur stig í riðlinum, hvernig eru mótherjar okkar á morgun?

„Við eigum að vera sterkari en þurfum bara að sýna það á morgun. Um þetta snýst þetta verkefni, gera þetta að fullum krafti og alvöru. Hvítrússneska liðið var seigt að verjast að gegn Hollandi. Þetta er andstæðingur sem þú þarft að bera virðingu fyrir og mæta þannig til leiks að þú klárir þetta verkefni."

Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.