Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 06. maí 2021 18:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ryanair skaut á Mourinho: Nægir handfarangurur
Mynd: Getty Images
Írska flugfélagið Ryanair nýtti sér fregnir um félagaskipti Jose Mourinho til að auglýsa ódýra flugferð frá London til Rómar.

Mourinho var rekinn frá Tottenham og tók við AS Roma á dögunum.

„Jose verður ánægður að vita að við fljúgum frá London til Rómar fyrir aðeins £14.99," segir í færslu Ryanair á Twitter.

„Hann vann enga titla hjá Tottenham svo við búumst við að honum nægi að taka með handfarangur fyrir þessa ferð."

Ryanair er vinsælt flugfélag sem sérhæfir sig í ódýrum flugferðum.


Athugasemdir
banner
banner
banner