Valur 2 - 3 ÍBV
0-1 Allison Patricia Clark ('9 )
1-1 Ágústa María Valtýsdóttir ('40 )
2-1 Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('48 )
2-2 Allison Grace Lowrey ('71 )
2-3 Viktorija Zaicikova ('78 )
Lestu um leikinn
0-1 Allison Patricia Clark ('9 )
1-1 Ágústa María Valtýsdóttir ('40 )
2-1 Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('48 )
2-2 Allison Grace Lowrey ('71 )
2-3 Viktorija Zaicikova ('78 )
Lestu um leikinn
Valur fékk nýliða ÍBV í heimsókn í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í dag. Nýliðarnir voru með sex stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en Valskonur með þrjú stig.
ÍBV fékk draumabyrjun þegar Allison Clark batt endahnútinn á laglega skyndisókn.
Valur náði að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks. Bryndís Eiríksdóttir átti sendingu inn á teiginn og Ágústa María Valtýsdóttir skallaði boltann í netið.
Valur komst síðan yfir strax í upphafi seinni hálfleiks. Arden Joy La-Rose, markvörður Eyjakvenna, átti slæma sendingu og Arnfríður Auður Arnarsdóttir komst í boltann og skoraði.
Eyjakonur gáfust ekki upp og náðu að jafna metin. Olga Sevcova átti skot sem Tinna Brá Magnúsdóttir, markvörður Vals, varði út í teiginn og Allison Lowrey fylgdi á eftir og skoraði.
Arnfríður var nálægt því að endurheimta forystu Valskvenna stuttu síðar en La-Rose varði vel frá henni. Strax í kjölfarið náðu Eyjakonur að komast yfir þegar Embla Harðardóttir átti frábæra sendingu innfyrir vörn Vals á Viktoriju Zaicikova sem vippaði yfir TInnu Brá og boltinn hafnaði í netinu.
Það reyndist sigurmarkið og ÍBV er á toppnum eins og er með fullt hús stiga en Valskonur eru í 7. sæti með þrjú stig.



