Kári Kristjánsson var í gær seldur frá FH aftur í uppeldisfélag sitt, Þrótt, aðeins fimm mánuðum eftir að hann var keyptur til FH frá Þrótti.
Kári, sem er 21 árs miðjumaður, fékk takmörkuð tækifæri í Hafnarfirði. Hann byrjaði tvo af fyrstu fimm leikjum FH í Bestu deildinni á tímabilinu.
FH hefur farið illa af stað og er með eitt stig eftir fimm umferðir. Þróttur hefur aftur á móti byrjað vel í Lengjudeildinni og er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Fótbolti.net ræddi við Kára um ákvörðunina að snúa aftur í uppeldisfélagið og tímann hjá FH.
Kári, sem er 21 árs miðjumaður, fékk takmörkuð tækifæri í Hafnarfirði. Hann byrjaði tvo af fyrstu fimm leikjum FH í Bestu deildinni á tímabilinu.
FH hefur farið illa af stað og er með eitt stig eftir fimm umferðir. Þróttur hefur aftur á móti byrjað vel í Lengjudeildinni og er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Fótbolti.net ræddi við Kára um ákvörðunina að snúa aftur í uppeldisfélagið og tímann hjá FH.
Óþarfi að bíða og vona
Hvernig kom þetta til?
„Ég hef átt einhver samtöl við bæði Jóa og Davíð síðasta mánuðinn til þess að reyna að átta mig betur á því hvernig þeir ætluðu að nota mig og fá það besta út úr mér, en á endanum gekk það bara ekki.
Mér fannst óþarfi að bíða lengur og vonast til að hlutirnir myndu allt í einu lagast. Þess vegna vildi ég fara frekar til Venna og í Þrótt þar sem ég vissi nákvæmlega hvernig hlutirnir væru framkvæmdir og hjálpa mínu liði og fólkinu mínu að ná okkar markmiðum.“
Hlutverkið minna en búist var við
Hvers vegna gekk þetta ekki upp í FH?
„Það er held ég erfitt að setja það á einhvern einn hlut, heldur er þetta blanda af mörgum atriðum sem gengu ekki upp. Síðustu vikur hefur hlutverk mitt minnkað töluvert frá því sem ég og FH sáum kannski fyrir okkur. Út frá því ákvað ég að reyna að koma mér aftur í Þrótt þar sem ég sá ekki alveg fram á að hlutirnir væru á leiðinni til hins betra á næstunni.“
„Auðvitað hefði verið hægt að gefa þessu meiri tíma en mér fannst óþarfi að bíða eitthvað lengur með þetta þar sem það er bara ákveðinn leikstíll sem verið er að keyra og verður keyrt á og því miður hentaði hann illa ef þú ætlar að ná því besta fram úr mér, fannst mér allavega.
Leikstíll Þróttar og FH er gjörólíkur og þeir sem hafa séð mig spila í Þrótti sáu held ég flestir að hlutverk mitt milli liðanna var mjög frábrugðið. Þess vegna ætti þetta að vera fín lausn fyrir báða aðila.“
Lærdómsríkur tími
Kári var spurður hvernig hann gerði þessa fimm mánuði í Hafnarfirði upp og hvernig honum finnst vegferðin og að vera undir Jóa Kalla.
„Þetta var hrikalega lærdómsríkur tími og hellingur sem ég tek mér í næstu verkefni sem tengjast þessum úrvalsdeildar 'standard' og umgjörð á hlutunum. Ben styrktarþjálfari er án efa færastur í sínu fagi á landinu og gerði helling fyrir mig í vetur sem ég er mjög þakklátur fyrir.
Ég held að allir átti sig á því að þessi vegferð sem FH er í mun taka tíma og hvort hún nái þeim hæðum sem þá dreymir um verður tíminn að leiða í ljós. Ég veit að allt teymið í kringum liðið og strákarnir eru tilbúnir að leggja á sig hellings vinnu og tíma og á endanum skilar það vonandi árangri.“
Ummælin beinskeytt og líta illa út
Í tilkynningu FH sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu: „Í þeirri uppbyggingu sem við erum í er mikilvægt að leikmennirnir okkar séu tilbúnir að leggja allt í verkefnið og þegar sú er ekki raunin þá er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið.“
Ummælin voru borin undir Kára og hann spurður hvort Davíð væri að gefa í skyn að hann hefði ekki lagt sig allan fram hjá FH og hvort ummælin hefðu truflað hann.
„Nei nei, þetta er ekkert sem truflar mig. Ég lét hann vita að mig langaði frekar að vera annars staðar og á okkar samtölum fann ég það að hann skildi mig vel en hann þarf auðvitað að hugsa um hag FH liðsins fyrst og fremst, bæði innan og utan frá.
Ég átta mig á því að þessi skilaboð líti frekar illa út og séu kannski beinskeytt, en ég lagði mig allan fram á öllum þeim æfingum og leikjum sem ég tók þátt í fyrir FH þannig að ég held að vandamálið hafi alls ekki snúist um þetta.“
Launatengd vandamál ekki ástæðan
Vandræði FH tengd launagreiðslum hafa verið til umræðu. Kári var spurður hvort að það hafi verið raunin hjá sér og hvort það hafi spilað rullu í ákvörðuninni að yfirgefa félagið.
„Nei það hafði engin áhrif á þessa ákvörðun heldur snerist hún að öllu leyti um fótboltann,“ sagði Kári að lokum.



