Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 09:58
Kári Snorrason
Lukaku og Conte reyna að grafa stríðsöxina
Lukaku og Conte fagna saman.
Lukaku og Conte fagna saman.
Mynd: EPA
Romelu Lukaku og Antonio Conte funda í dag þar sem reynt verður að ná sáttum eftir að belgíski framherjinn var settur út í kuldann hjá Napoli í rúman mánuð.

Í landsleikjahléinu í mars neitaði Lukaku að snúa aftur til félagsins og var áfram í Belgíu án samþykkis Napoli. Í kjölfarið var hann sektaður og fékk ekki að æfa með liðinu.

Síðan þá hefur Lukaku verið einn í endurhæfingu í Antwerpen í heimalandinu en hann hefur aðeins spilað 64 mínútur á tímabilinu vegna mikilla meiðsla.

Federico Pastorello, umboðsmaður Lukaku, staðfesti að framherjinn muni æfa með liðsfélögum sínum í dag og hitta Conte sem mun svo taka ákvörðun um framhaldið.

Samningur Lukaku við Napoli gildir til sumarsins 2027.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner