Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   lau 06. júní 2026 19:49
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Sex mörk og tvö rauð spjöld er KFA vann KFG - Langþráður sigur Dalvíkur/Reynis
KFA skoraði fimm
KFA skoraði fimm
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Dalvík/Reynir er komið aftur á sigurbraut
Dalvík/Reynir er komið aftur á sigurbraut
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson
Dalvík/Reynir vann langþráðan 1-0 sigur á Þrótti Vogum í 6. umferð 2. deildar karla í dag. KFA vann magnaðan 5-1 sigur á KFG og þá gerðu Víkingur Ólafsvík og Kári 3-3 jafntefli á Ólafsvík.

Dalvík/Reynir byrjaði Íslandsmótið á sigri en fór svo í gegnum næstu fjóra leiki án sigurs.

Máni Dalsteinn Ingimarsson var hetja liðsins gegn Vogamönnum í dag með sigurmarki á 88. mínútu og annar sigur Dalvíkur/Reynis staðreynd. Liðið er í 9. sæti með 7 stig en Vogamenn í sætinu fyrir ofan með jafnmörg stig en betri markatölu.

KFA vann frábæran 5-1 stórsigur á KFG. Geir Sigurbjörn Ómarsson og Kifah Moussa Mourad komu heimamönnum í KFA í 2-0 forystu á fyrstu tuttugu mínútunum áður en Djordje Biberdzic minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu á 40. mínútu.

Patrekur Aron Grétarsson og Marc Espi komu KFA í þriggja marka forystu með því að skora sitt hvorum megin við hálfleik.

Aron Freyr Heimisson fékk rautt spjald í liði KFG á 78. mínútu áður en Javier Muno gerði fimmta mark heimamanna. Nokkrum mínútum síðar fékk Patrekur Aron sitt annað gula spjald og þar með rautt og því jafnt í liðum síðustu mínúturnar.

KFA er í 5. sæti með 9 stig en KFG í 10. sæti með 6 stig.

Birkir Hrafn Samúelsson var bjargvættur Kára, sem gerði 3-3 jafntefli við Víking Ólafsvík á Ólafsvíkurvelli.

Máni Berg Ellertsson kom Kára yfir í upphafi leiksins en heimamenn náðu að snúa taflinu við á ellefu mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks með mörkum frá Naim El Hmaidi og Ingvari Frey Þorsteinssyni.

Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson jafnaði metin þegar tuttugu mínútur voru eftir en El Hmaidi kom heimamönnum aftur yfir aðeins sex mínútum síðar. Í uppbótartíma tókst Kára að bjarga stigi þegar Birkir Hrafn kom boltanum í netið og þar við sat.

Kári er í öðru sæti deildarinnar með 11 stig en Ólsarar eru með 5 stig í næstneðsta sæti.

Úrslit og markaskorarar:

Dalvík/Reynir 1 - 0 Þróttur V.
1-0 Máni Dalstein Ingimarsson ('88 )

Víkingur Ó. 3 - 3 Kári
0-1 Máni Berg Ellertsson ('2 )
1-1 Naim Aaras EL Hmaidi ('27 )
2-1 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('38 )
2-2 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('72 )
3-2 Naim Aaras EL Hmaidi ('78 )
3-3 Birkir Hrafn Samúelsson ('90 )
Rautt spjald: Naim Aaras EL Hmaidi ('78, Víkingur Ó. )

KFA 5 - 1 KFG
1-0 Geir Sigurbjörn Ómarsson ('14, víti )
2-0 Kifah Moussa Mourad ('20 )
2-1 Djordje Biberdzic ('40, víti )
3-1 Patrekur Aron Grétarsson ('43 )
4-1 Marc Sirvent Espi ('48 )
5-1 Javier Montserrat Munoz ('84 )
Rautt spjald: Aron Freyr Heimisson ('78, KFG ), Patrekur Aron Grétarsson ('88, KFA )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 5 4 0 1 17 - 6 +11 12
2.    Kári 6 3 2 1 19 - 10 +9 11
3.    Selfoss 6 3 2 1 13 - 11 +2 11
4.    KFA 6 3 0 3 17 - 12 +5 9
5.    Fjölnir 6 3 0 3 17 - 13 +4 9
6.    Kormákur/Hvöt 5 2 1 2 8 - 5 +3 7
7.    Hvíti riddarinn 5 1 4 0 7 - 5 +2 7
8.    Þróttur V. 6 2 1 3 6 - 8 -2 7
9.    Dalvík/Reynir 6 2 1 3 6 - 12 -6 7
10.    KFG 6 2 0 4 10 - 20 -10 6
11.    Víkingur Ó. 6 1 2 3 10 - 17 -7 5
12.    Magni 5 1 1 3 5 - 16 -11 4
Slapp
banner