Hallgrímur Jónasson: Hefðum getað komist í 2-0 eftir þrjár mínútur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Talsverður hiti var bæði í stúkunni og inná vellinum. Hvernig upplifði Hallgrímur þetta á hliðarlínunni?
„Já, mér fannst leikurinn harður en "fair". Mér fannst ekki eitthvað mikið bull, kannski eitt atvik. Það er tæklað Grímsa tveggja fóta í sköflunginn, en ekkert dæmt. En annars fannst mér leikurinn vel dæmdur, liðin tókust á því en mér fannst leikmenn inná vellinum vera "fair" og dómararnir höfðu bara gott kontról á þessu,'' sagði Hallgrímur.
Adam Ægir Pálsson spilaði sinn annan leik fyrir KA og var lúsiðinn frá fyrstu mínútu. Hallgrímur hrósaði honum í hástert.
„Ég er mjög ánægður með hann. Maður vissi ekki alveg hvernig standið væri á honum, af því að hann var búinn að vera að æfa sjálfur og hljóp mikið í síðasta leik. En hann er flottur, það eru hann og Gaui sem eru að skapa hérna í fyrri hálfleik og það eru mikil gæði í honum. Ég er líka bara ánægður með hugarfarið hans, hann kemur bara auðmjúkur og tilbúinn að leggja sig fram. Þetta er strákur sem er búinn að spila í flottum liðum á háu leveli og veit hvað þarf til. Ég er bara gríðarlega ánægður með hann,'' sagði Hallgrímur Jónasson.
