Alisson og Curtis Jones hafa verið orðaðir við brottför frá Liverpool í sumar. Jones er sagður nálægt því að ganga til liðs við Inter.
Federico Chiesa, liðsfélagi Alisson og Jones, var í viðtali við ítalska miðilinn Gazzetta dello Sport þar sem hann sagðist íhuga að yfirgefa félagið.
Federico Chiesa, liðsfélagi Alisson og Jones, var í viðtali við ítalska miðilinn Gazzetta dello Sport þar sem hann sagðist íhuga að yfirgefa félagið.
Hann var einnig spurður út í Jones og Alisson, sem hefur verið orðaður við Juventus.
„Jones hefur spurt mig út í lífið á Ítalíu. Ég sagði við hann að það væri frábært og veðrið væri betra en í Liverpool og fyrir utan það er það sérstakur staður. Jones er tæknilega mjög góður. Það er gott hjá Inter að hugsa um að kaupa hann," sagði Chiesa.
„Eftir því sem ég best veit verður Alisson áfram á Englandi. Við erum að tala um einn af fimm bestu leikmenn jarðarinnar. Hann er stórkostlegur leiðtogi. Hann hefur unnið allt og gerir gæfumuninn á vellinum og í klefanum."




