Fotbolti.net
06.06.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
LiveyÍtalski boltinn

Fyrrum úrvalsdeildarþjálfarar efstir á óskalista Milan

Fyrrum úrvalsdeildarþjálfarar efstir á óskalista Milan
Canon

Mynd: EPA

Austurríski þjálfarinn Oliver Glasner er meðal efstu kosta á óskalista AC Milan sem er í leit að nýjum aðalþjálfara eftir brottrekstur Massimiliano Allegri.
Sky Sports greinir frá því að stjórnendur Milan hafi þegar sett sig í samband við umboðsteymi Glasner og gæti hann myndað öflugt teymi hjá félaginu ásamt Ralf Rangnick.

Rangnick er aðalþjálfari austurríska landsliðsins sem stendur en gæti tekið við starfi yfirmanns fótboltamála hjá Milan. Glasner og Rangnick þekkjast vel eftir að hafa starfað saman hjá Red Bull þar sem þeir mynduðu góða tengingu.

Önnur leið sem stjórnendur Milan eru að hugsa um að fara er að ráða inn Ramón Planes, fyrrum yfirmann fótboltamála hjá Barcelona, ásamt Mauricio Pochettino landsliðsþjálfara Bandaríkjanna. Planes og Pochettino þekkjast vel eftir að hafa starfað saman hjá Espanyol við góðan orðstír.

Milan átti fínt tímabil lengst af en lokaspretturinn var hrikalegur. Lærlingar Allegri misstu óvænt af Meistaradeildarsæti og voru margir stjórnendur reknir í kjölfarið. Giorgio Furlani, Igli Tare og Geoffrey Moncada voru allir látnir taka pokana sína ásamt Allegri.

Rangnick og Pochettino eru uppteknir í sumar þegar þeir stýra liðum sínum til leiks á heimsmeistaramótinu á meðan Glasner og Planes eru frjálsir ferða sinna.

Glasner: Trúi ekki að þetta hafi verið síðasti leikurinn
TENGT EFNI

Glasner: Trúi ekki að þetta hafi verið síðasti leikurinn

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Juventus2+56
1Roma1+43
2Inter2+56
2Inter1+33
3Bologna2+14
3Lecce1+23
4Milan1+33
4Napoli1+23
5Milan1+13
5Napoli1+23
6Atalanta1+13
6Chievo1+13
7Sampdoria1+13
7Juventus1+13
8Roma2-13
8Lazio1+13
9Torino101
9Cagliari1+13
10Lazio101
10Udinese101
11Sassuolo101
11Como101
12Spal101
12Sassuolo1-10
13Genoa2-21
13Torino1-10
14Udinese1-10
14Bologna1-10
15Frosinone1-10
15Atalanta1-10
16Parma1-10
16Benevento2-20
17Verona1-20
17Genoa1-20
18Venezia1-20
18Cremonese38-2534
18Cagliari1-30
19Verona38-3621
19Crotone1-30
19Monza1-30
20Pisa38-4518
20Fiorentina1-40
20Fiorentina1-30
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.