Það er margt um að vera í undirbúningi stórþjóða fyrir heimsmeistaramótið í dag þar sem mikið af vináttulandsleikjum eru á dagskrá.
Sigurstranglegt lið Englands spilar við Nýja-Sjáland í Flórída á sama tíma og nágrannarnir frá Skotlandi mæta Bólivíu í New Jersey.
Brasilía, Þýskaland, Portúgal og Belgía eru einnig meðal þjóða sem eiga leiki.
Brasilía mætir Mohamed Salah og félögum frá Egyptalandi í hörkuslag en Þjóðverjarnir eiga leik við heimamenn í Bandaríkjunum.
Portúgal og Belgía eiga svo heimaleiki við Síle og Túnis áður en þjóðirnar fljúga vestur yfir haf fyrir lokamótið.
Leikir dagsins
10:00 Vanúatú - Fídjí
11:30 Mjanmar - Gvam
12:00 Eþíópía - Malaví
13:00 Belgía - Túnis
14:30 Kirgistan - Palestína
16:00 Armenía - Kasakstan
16:00 Síerra Leóne - Líbería
16:00 Rúanda - Kómoreyjar
17:00 Gibraltar - Cayman-eyjar
17:45 Portúgal - Síle
17:45 Rúmenía - Wales
18:00 Albanía - Lúxemborg
18:30 Bandaríkin - Þýskaland
19:00 Ástralía - Sviss
19:00 Panama - Bosnía
20:00 Bólivía - Skotland
20:00 Grænhöfðaeyjar - Bermúda
20:00 England - Nýja-Sjáland
20:00 Katar - El Salvador
22:00 Brasilía - Egyptaland
22:00 Venesúela - Tyrkland
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



