06.07.17 - 22:32
Dagur Lárusson
Pedro: Áttum meira skilið
Auglýsing

Pedro Hipólíto

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Pedro Hipólíto

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Pedro Hipólíto, nýráðinn þjálfari Fram, stýrði sínum fyrsta leik með liðinu í kvöld þegar Fram tók á móti Keflavík á Laugardalsvelli.
Leikurinn var heldur bragðdaufur en Pedro taldi sitt lið hafa verið óheppið að hafa ekki fengið allaveganna eitt stig úr leiknum.
„Já mér finnst að við áttum önnur úrslit skilið úr þessum leik. Við lögðum hart að okkur, spiluðum vel og vorum mjög skipulagðir og áttum mikið betri færi heldur en Keflavík, en svona er fótboltinn,\" sagði Pedro
Það var athyglisvert í leiknum að í hvert skipti sem að Fram fékk innkast við teig Keflavíkur þá stilltu þeir alltaf upp og sagði Pedro að þetta hafi verið hluti af upplegginu fyrir leikinn.
„Já við höfum verið að æfa þetta á æfingum og við viljum skora svona.\"
Að lokum sagði Pedro að hann hafi verið spenntur fyrir því að koma til Íslands að þjálfa vegna þess í hvaða átt íslenskur fótbolti er að stefna og nefndi hann þá íslenska landsliðið sem dæmi.
„Fótboltinn á Íslandi er mjög spennandi núna og sést það augljóslega á landsliðinu ykkar. Ég vildi koma hingað til þess að læra og leggja hart að mér.\"