Fotbolti.net
06.07.17 - 22:07
Orri Rafn Sigurðarson

Siggi Brynjólfs: Auðvitað eru alltaf nöfn á blaði

Auglýsing
Siggi Brynjólfs: Auðvitað eru alltaf nöfn á blaði
Canon

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

Sigurður Brynjólfsson aðstoðarþjálfari Gróttu var að vonum svekktur eftir 2-0 tap sinna manna gegn HK í Kórnum í kvöld

Grótta átti flottan leik á móti Keflavík í seinustu umferð þar sem þeir töpuðu 1-0 en voru betri aðilinn í þeim leik

\"Þetta var týpiskur stál í stál leikur kannski spurninginn bara hver skorar fyrsta markið í svona leik eftir að þeir skoruðu er svona smá smyrill með þeim og þeir fá víti í kjölfarið og við vorum of lengi að bregðast við smá sjokk á okkur \"


Grótta hefur átt erfitt með að skora í sumar ætlar Grótta að styrkja sig í glugganum

\"Það er alltaf opið fyrir góða menn en það ætla örruglega öll lið á Íslandi ætla að styrkja sig í glugganum en ekki veikja sig en auðvita eru alltaf nöfn á blaði \"

Það komu fréttir í vikunni að fyrirliði Gróttu Guðmundur Marteinn yrði frá út tímabilið vegna meiðsla á hné

\"Við sjáum bara hvað gerist við erum með flotta stráka ungt lið samheldið lið gáum hvort við getum ekki fylgt þetta með heimamönnum og kannski góðum viðbætum \"

Sagði Sigurður Brynjólfsson eftir leikinn í kvöld
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.