Fotbolti.net
06.07.23 - 21:16
Anton Freyr Jónsson

Hans Viktor: Gefur okkur sjálfstraust

Auglýsing
Hans Viktor: Gefur okkur sjálfstraust
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Lengjudeildin

„Ég er bara mjög ánægður með þetta. Við erum ekki búnir að vera nógu góðir á heimavelli og fá sigur hérna og í undanförnum leikjum hafa ekki verið alveg nógu góðir. Mér fannst þetta góð frammistaða og gott að klára þetta." sagði Hans Viktor fyrirliði Fjölnis eftir sigurinn á Leikni 4-1 á Extravelllinum í dag.

„Þetta á að vera okkur vígi og við viljum bæta okkur hérna. Það er alveg augljóst."

„Þeir komu sprækir inn í seinni hálfleik og við vorum í smá erfiðleikum en síðan náum við að rífa okkur aðeins í gang og skora þrjú mörk."

„Það eru allir leikir mikilvægir í þessari deild og það er ótrúlega gott að fá sigur og skora fjögur og það gefur okkur sjálfstraust."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.