Hágrét eftir leikinn í Breiðholti - „Fengum bara í alvörunni stig út úr þessum leik með mig í markinu"

Tilfinningarnar báru Tómas ofurliði eftir leikinn á laugardag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Elmar mættur til síns manns.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Myndir frá Hauki Gunnarssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Axel einn gegn Tómasi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jochum gat ekki haldið leik áfram vegna meiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mættur á hækjur eftir leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Allir leikmenn Völsungs hópuðust í kringum Tómas.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Allir þessir gæjar, ég elska þá alla!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tilfinningarnar báru Tómas ofurliði eftir leikinn á laugardag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tómas var þó ekki að fara inn á í sína hefðbundnu stöðu framarlega á vellinum, heldur betur ekki, því hann átti að standa vaktina í marki Völsungs þar sem markvörðurinn Jochum Magnússon hafði meiðst í fyrri hálfleiknum og enginn varamarkvörður er á bekknum.
Tómas stóð vaktina í seinni hálfleiknum og náði Völsungur stigi út úr leiknum með marki í uppbótartíma.
Tómas er fæddur árið 2007, uppalinn hjá Völsungi og var hluti af 2. flokks liði sameiginlegu liði Þórs sem varð Íslandsmeistari í fyrra.
Hann hefur komið við sögu í öllum leikjum tímabilsins og í 1. umferð skoraði hann jöfnunarmark Völsungs eftir að hafa komið inn á sem varamaður á lokakaflanum. Það var fyrsta deildarmarkið á ferlinum og ótrúlegt en satt líka í leik á móti Leikni.
Fótbolti.net ræddi við kappann í dag.

Útileikmaður fór í markið en Völsungur náði samt stigi
„Þetta byrjaði allt þegar það var tæklað í Jochum á svona tíundu mínútu. Hann lá lengi eftir og þá fara þjálfararnir, Borja og Parla, aðeins að verða stressaðir og spyrja hver sé klár í að fara í mark," segir Tómas Bjarni sem var á bekknum.
„Ég sagði ekki orð fyrst af því mig langaði ekkert að fara í mark. En ég lít svo upp og sé að það horfa allir á mig. Og allir voru sammála um að ég væri besti kosturinn til þess að koma inn á en ég sagði ekki eitt einasta orð. "
„Svo stendur Jochum upp og heldur áfram og heldur sér inn á út hálfleikinn. En ég einhvern veginn sá það alltaf á Jochum að hann væri að fara út af og var að deyja úr stressi allan fyrri hálfleik. Ég gat ekki einu sinni fagnað markinu sem Gestur (Aron Sörensson) skoraði."
„Svo kemur hálfleiks flautið og Jochum segir strax að hann sé off, geti ekki haldið áfram. Og þá kemur Parla til mín og segir við mig að ég sé að koma inn á. Það var í raun ekkert samtal, ég átti bara að fara inn á. Þannig að ég fór inn í klefa setti á mig hanska og fór að hita upp. Það var aldrei rætt við mig fyrir leik að ég væri einhver varamarkmaður þetta kom mér mjög mikið á óvart," segir kappinn.
En af hverju horfðu allir á þig?
„Ég var markmaður í 5. flokki og held að það hafi verið eina ástæðan. En ég var líklega klikkaðasti gaurinn líka á bekknum, það var enginn annar að fara gera þetta."
Ekki með markmenn á æfingum
Eftir að þú varst í 5. flokki, hefur þú tekið æfingu eða eitthvað verið í markinu?
„Nei, ekki þannig, nema bara svona hoppað inn á æfingum af því að við æfum ekki með markmenn, en ekkert meira en aðrir."
Bíddu, er þá enginn markmaður á æfingum hjá ykkur?
„Mjög sjaldan, það er oftast bara daginn fyrir leik þegar Jochum kemur að sunnan."
Hefur það engin truflandi áhrif að vera ekki með markmann eða markmenn á æfingum?
„Jú, helling. Það er drullu pirrandi en það eru nokkrir ungir sem taka það þetta á sig sem er fínt."
Leið hræðilega í markinu
Aftur að efninu, leiknum gegn Leikni. Hvernig leið þér í rammanum?
„Mér leið hræðilega ef ég á að vera hreinskilinn, var að deyja úr stressi var og alltaf að bíða eftir því að Leiknismenn myndu skjóta frá miðju og skora."
Átti ekki séns í hornspyrnuna
Það gerðist ekki, en Leiknir skoraði reyndar beint úr horni. Ertu svekktur með það mark?
„Nei, ég er ekkert ósáttur þannig séð, ég er pínulítill og Leiknismenn voru allir á mér og ég átti aldrei séns í þetta."
„Er þetta þá ekki bara solid?"
Tómas kom inn í markið í stöðunni 1-1. Ertu sáttur við frammistöðuna heilt yfir?
„Já, ætli það ekki bara. Það var fyrrum Bestu deildar markmaður hinu megin (Ólafur Íshólm Ólafsson) með jafn mörg mörk á sig. Er þetta þá ekki bara solid?" spyr Tómas.
Mun kaupa þá nokkra fyrir Tryggva en þorði lítið að fagna
Tryggvi Grani Jóhannsson jafnaði leikinn fyrir Völsung á annarri mínútu uppbótartíma. Hvernig leið þér þegar þið náðuð jöfnunarmarkinu í lokin?
„Mér hefur sjaldan liðið jafn vel. Ég á eftir að kaupa þá nokkra fyrir Tryggva minn í sumar. En hugsaði líka strax að þetta væri alls ekki búið. Varð eiginlega smá meira stressaður eftir þetta, þorði varla að fagna."
Fékk rosalegt spennufall
Á myndum sem Haukur Gunnarsson tók sást að tilfinningarnar náðu til Tómasar eftir leik. Hvað fór í gegnum hausinn á þér?
„Já, ég get alveg sagt það að ég fór að hágráta eftir leik. Fékk svona rosalegt spennufall, var ónýtur eftir leik. Það eina sem fór í gegnum hausinn á mér þarna að við fengum bara í alvörunni stig út úr þessum leik með mig í markinu. Ég skildi það ekki alveg."
Ég elska þá alla
Hvað var það fyrsta sem þú gerðir eftir þessi augnablik í lok leiks?
„Þegar Gunnar (Oddur Hafliðason, dómari) flautaði af þá settist ég beint niður og ég man að Elmar (Örn Guðmundsson) kom fyrstur til mín og kom að spjalla við mig. Svo komu bara allir í liðinu og hrósuðu mér og tóku utan um mig. Þetta er svo geggjað þetta lið sem ég er í. Allir þessir gæjar, ég elska þá alla! Það ekkert símtal í einhvern eða svoleiðis, það eina sem ég gerði þegar ég kom inn í klefa var að reyna ná mér niður."
Vill fá Einar heim
Klár ef kallið kemur aftur?
„Jájá, ætli það ekki. Vonandi verðum við bara með varamarkmann það sem eftir er. Væri til í að fá vin minn Einar Ísfjörð heim," segir Tómas en Einar er hjá Tindastóli.
Fjögur stig sem Leiknismenn hljóta að horfa í
Er eitthvað augnablik í seinni hálfleiknum sem kemur fyrst upp í hugann?
„Þetta þriðja mark hjá Leikni, ég hélt þeir myndu skora svona sjö í leiknum þegar þeir skoruðu þriðja markið."
„Uppáhaldsvarslan er svo sú sem ég átti gegn Axel Harðar sem komst í gegn, varði með löppinni," segir Tómas og nefnir að aðal umræðuefnið í klefa Völsungs sé sú staðreynd að hann skoraði gegn Leikni í fyrri leiknum á Húsavík og var svo í markinu í þessum leik í Breiðholtinu á laugardag.
Það má því með sanni segja að Tómas hafi reynst Leikni óþægilegur ljár í þúfu þetta sumarið.

Elmar mættur til síns manns.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Myndir frá Hauki Gunnarssyni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Axel einn gegn Tómasi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jochum gat ekki haldið leik áfram vegna meiðsla.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mættur á hækjur eftir leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Allir leikmenn Völsungs hópuðust í kringum Tómas.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Allir þessir gæjar, ég elska þá alla!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Borja: Ákváðum að Tommi væri besti kosturinn til að standa í markinu

Brynjar Björn: Svekkjandi að missa niður 3–2 forystu

Myndaveisla: Völsungur tók stig gegn Leikni með útileikmann í marki
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 12 | +16 | 25 |
| 2 | Fylkir | 12 | +6 | 24 |
| 3 | Þróttur R. | 12 | +12 | 23 |
| 4 | Vestri | 13 | +2 | 21 |
| 5 | Leiknir R. | 12 | +2 | 19 |
| 6 | HK | 12 | +1 | 19 |
| 7 | Njarðvík | 12 | +3 | 17 |
| 8 | Grótta | 11 | -4 | 16 |
| 9 | ÍR | 12 | -7 | 11 |
| 10 | Grindavík | 11 | -3 | 10 |
| 11 | Völsungur | 12 | -11 | 8 |
| 12 | Ægir | 13 | -17 | 8 |

