Íslensk félög reynt að fá Hrannar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Kristiansund

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa íslensk félög reynt að fá Hrannar Snæ Magnússon frá Kristiansund í Noregi. Þau hafa sent fyrirspurnir og bæði reynt að kaupa og fá á láni, en svarið hefur verið nei. Mörg félög í Bestu deildinni fylgjast með stöðu mála en mörg þeirra vildu fá hann í vetur þegar hann kaus að semja í Noregi.
Norska félagið vill ekki missa hann, en hann kom til félagsins í vetur eftir mjög gott tímabil með Aftureldingu í Bestu deildinni í fyrra.
Norska félagið vill ekki missa hann, en hann kom til félagsins í vetur eftir mjög gott tímabil með Aftureldingu í Bestu deildinni í fyrra.

TENGT EFNI
Sævar Atli lék sinn fyrsta leik í 263 daga - Hrannar Snær skoraði
Hrannar (2001) er kantmaður sem hefur verið í aukahlutverki til þessa á tímabilinu, hann er núna heill, skoraði í æfingaleik á föstudag og minnti á sig.
Kristiansund mætir Rosenborg á sunnudag í fyrstu umferð eftir HM hlé. Freyr Alexandersson er þjálfari Rosenborgar og hjá Kristiansund er Hrannar liðsfélagi Júlíusar Mars Júlíussonar.