Fotbolti.net
03.07.26 - 19:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sævar Atli lék sinn fyrsta leik í 263 daga - Hrannar Snær skoraði

Sævar Atli lék sinn fyrsta leik í 263 daga - Hrannar Snær skoraði
Canon

Mynd: EPA

Það var Íslendingaslagur þegar Brann og Kristiansund mættust í æfingaleik í dag.

Sævar Atli Magnússon kom inn á hjá Brann fyrir Kristal Mána Ingason þegar tuttugu mínútur voru til loka leiksins. Þetta var fyrsti leikurinn hans síðan hann meiddist í landsleik gegn Frakklandi í október.
Hann lenti í allskonar brasi í kjölfar aðgerðar og þurfti að gangast undir þrjár aðgerðir til viðbótar. Frábærar fréttir að sjá hann aftur á vellinum.

Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund og Hrannar Snær Magnússon kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri Kristiansund.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.