Fotbolti.net
06.07.26 - 22:19
Brynjar Ingi Erluson

Óskar tætti Infantino í sig - „Löngu farinn yfir til Svarthöfða og félaga“

Gianni Infantino, forseti FIFA

Gianni Infantino, forseti FIFA

Canon

Mynd: EPA

Það hitnaði aðeins í kolunum í umræðu um Folarin Balogun, símtal Donald Trump og ákvörðun FIFA í HM-stofunni í kvöld.
Trump lét afturkalla leikbannið
TENGT EFNI

Trump lét afturkalla leikbannið

Eins og fjallað hefur verið um fær Balogun, stjörnuleikmaður Bandaríkjanna, að spila gegn Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í nótt.

Hann fékk rautt spjald í 32-liða úrslitunum gegn Bosníu og Hersegóvínu, en var heimilað að spila gegn Belgíu eftir að Bandaríkjaforseti hringdi í Gianni Infantino, forseta FIFA.

Balogun fékk skilorðsbundið bann, sem þykir afar sérstakt enda hefur línan alls ekki verið á þennan hátt á mótinu.

Óskar Hrafn Þorvaldsson segir málið vandræðalegt fyrir Bandaríkjamenn.

„Þetta er bara vandræðalegt. Ég veit að það sem ég segi ýti ekki við Infantino og að hann taki sig saman í andlitinu og fara að haga sér eins og maður. Ég átta mig á því og hann er löngu farinn yfir til Svarthöfða og félaga. Hann var farinn inn í myrkrið og honum verður ekki ýtt inn í ljósið út af því sem ég segi.“

„Þetta er grín og vandræðalegt. Þetta er sérstaklega vandræðalegt fyrir Bandaríkjamenn. Infantino er trúður og var trúður fyrir þetta hangandi með öllum og sleikjandi rassgatið á öllum ríku köllunum og áhrifamiklu mönnunum. Þeir sitja náttúrulega upp með appelsínugulan trúð og þarna koma tveir trúðar saman og það er ekkert sérstaklega gáfulegt sem gerist þá. Þetta er vandræðalegt fyrir FIFA en kemur ekkert rosalega á óvart því hann er búinn að vera gera lítið úr þessu. 48 þjóða HM er ekki málið. Hann horfir á þetta með dollaraseðil í augunum,“
sagði Óskar.

Gunnar Birgisson benti á að mótið hafi verið skemmtilegt, sem það hefur vissulega verið á köflum með 48 þjóða fyrirkomulaginu. Þá skaut Eiður Smári Guðjohnsen inn í: „Ekki vera þriðji trúðurinn hérna!“.

Óskar var ósammála Gunnari og sagði riðlakeppnina alls ekki hafa verið frábæra.

„Riðlakeppnin var ekki frábær. Það voru allir bara: Getur þessi riðlakeppni ekki klárast svo hægt sé að horfa á alvöru leiki? Hversu margir töluðu þannig? Kannski ekki þú því þú varst límdur við skjáinn yfir öllum stórleikjunum. Suður-Afríku og Suður-Kóreu og eitthvað.“

„Ég held bara að með Infantino er þetta enn eitt málið sem hann er að gera lítið úr fótboltanum. Þetta er vandræðalegt því miður og verst fyrir Bandaríkjamenn og svo auðvitað Belga sem þurfa að mæta liði þar sem lykilmaður átti að vera í banni, en Trumparinn sagði nei hann má spila,“
sagði hann enn fremur.

Eiður sagði málið skammarlegt fyrir FIFA.

„Þetta er skammarlegt og tekur burt trúverðugleika hjá FIFA. Hversu mikil áhrif Trump hafði á þetta vitum við aldrei, en að þetta sé að gerast dregur þetta mót niður um 3-4 plön. Bara þessi eina ákvörðun og allt í lagi að leggja og breyta ákvörðunum um rautt spjald, allar tæklingar úr öllum sjónarhornum. Þú getur ekki gert þetta á miðju móti þetta þarf að liggja fyrir þessi regla fyrir mótið. Ef aðrir eru búnir að taka út sína refsingu þá verður bara að vera ein lína.“

UEFA fordæmdi þessa ákvörðun FIFA en það kom fyrrum landsliðsframherjanum ekki neitt á óvart.

„Það er ekki risastórt. Fólk veit það ekki nógu vel og mikið að rígurinn á milli UEFA og FIFA er svakalegur, nánast stríð á milli þessara tveggja sambanda þannig þetta kemur ekkert á óvart,“ sagði Eiður ennfremur.
„Þeir sitja náttúrulega upp með appelsínugulan trúð og þarna koma tveir trúðar saman og það er ekkert sérstaklega gáfulegt sem gerist þá.“

„Þeir sitja náttúrulega upp með appelsínugulan trúð og þarna koma tveir trúðar saman og það er ekkert sérstaklega gáfulegt sem gerist þá.“

Canon

Mynd: EPA

Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Óskar Hrafn Þorvaldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.