Fotbolti.net
06.08.16 - 17:55
Daníel Geir Moritz

Þorvaldur Örlygsson: Grindavík með eitt af betri liðunum

Auglýsing
Ánægður með 3 stig í dag

Ánægður með 3 stig í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<em>&bdquo;Vi&eth; erum mj&ouml;g &aacute;n&aelig;g&eth;ir. Gekk upp &iacute; dag a&eth; n&aacute; &iacute; &thorn;rj&uacute; stigin sem betur fer og vi&eth; spilu&eth;um alveg &thorn;okkalega. Vi&eth; h&ouml;fum oft spila&eth; betur en vi&eth; ger&eth;um n&oacute;g til a&eth; n&aacute; &iacute; &thorn;rj&uacute; stigin og klaufalegt a&eth; f&aacute; &aacute; okkur &thorn;etta mark &thorn;arna &iacute; restina,&ldquo;</em>sag&eth;i &THORN;orvaldur &Ouml;rlygsson, &thorn;j&aacute;lfari Keflav&iacute;kur, eftir 2-1 sigur &aacute; Fjar&eth;abygg&eth; &iacute; dag.<br />
Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur en svo kom góður kafli hjá Fjarðabyggð sem gestunum tókst ekki að nýta. „Við verðum bara að gefa þeim kretit, þeir náðu að rúlla boltanum ágætlega úti á velli án þess að ná þó að skapa sér en við vorum með of margar lélegar sendingar þegar við fengum tækifæri til að brjóta okkur fram og fá færi.“



Með sigrinum komst Keflavík upp í 3. sæti deildarinnar og er komið í toppbaráttuna af alvöru, þar sem efstu liðin hafa verið dugleg að vannýta sín tækifæri í sumar. „Ég held að þetta sé ekkert örðuvísi en undanfarin ár að, vissulega var breyting í fyrra að eitt lið náði að stinga af, en undanfarin fjögur ár hefur deildin verið svona þannig að þetta er engin breyting á því.“



Keflavík mætir Grindavík og KA, tveimur efstu liðunum í næstu tveimur leikjum og hafði Þorvaldur þetta að segja. „Allir leikirnir hafa verið erfiðir og við höfum þurft að hafa fyrir hlutunum. Við höfum svo sem verið að safna stigum undanfarið og við ætlum að reyna að halda því áfram. Við áttum ágætis leik á móti Grindavík hér, Grindavík er með eitt af betri liðunum, og við þurfum að eiga góðan leik til þess,“ sagði Þorvaldur að lokum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.