Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. ágúst 2022 14:37
Aksentije Milisic
Gerrard skipti um fyrirliða: Mings verið hljóðlátur
Mynd: EPA

Steven Gerrard, stjóri Aston Villa, segir að Tyrone Mings, leikmaður liðsins, hafi ekki tekið því alltof vel þegar Gerrard ákvað að taka fyrirliðabandið af kappanum og láta John McGinn fá það.


Mings fékk bandið hjá Villa þegar Jack Grealish var seldur til Manchester City fyrir einu ári síðar en Gerrard hefur ákveðið að breyta til. Mings er ekki öruggur með byrjunarliðssæti hjá liðinu eftir að það keypti Diego Carlos frá Sevilla.

„Tyrone hefur verið hljóðlátur. Þetta er ennþá svolítið ferskt og hann er ennþá smá vonsvikinn með ákvörðun mína, sem að ég skil vel,” sagði Gerrard.

„Hann var valinn fyrirliði tímabundið hjá félaginu áður en ég kom og ég leyfði honum að klára síðasta tímabil með bandið. Tyrone er sannur atvinnumaður og hann er reynslumikill.”

„Tyrone er með góða eiginleika sem leikmaður og ég vona að hann haldi áfram að bregðast við á réttan hátt. Á sama tíma höfum við tilkynnt McGinn það að hann er ekki öruggur með byrjunarliðssæti þó hann sé kominn með fyrirliðabandið.”

Mings skrifaði á Twitter að hann virðir ákvörðun stjórans og það hafi verið sannur heiður að vera fyrirliði liðsins. Allt sé þetta spurning um hvað sé best fyrir liðið.


Athugasemdir
banner
banner