06.08.26 - 14:47
Albert Guðmundsson
38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans
Fyrsti þáttur er kominn út!
Auglýsing

Haaland er dýrasti leikmaður í sögu Fantasy Premier League

Mynd: EPA

38 umferðir er aðgengilegt á öllum helstu veitum

Mynd: Albert Guðmundsson

38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag.
Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá því sem gerðist í þeirri síðustu og leggja línurnar fyrir þá næstu.

Albert og Sindri mynda gott dúó með breiða skírskotun en Albert er mjög reynslumikill spilari og samkvæmt fplresearch.com besti Fantasy Premier League spilarinn á Íslandi. Sindri er reynsluminni og nálgast leikinn með örlítið öðrum hætti en þeir bestu í bransanum. Þar getur brugðið til beggja vona.
Í fyrsta þætti tímabilsins settust strákarnir niður í Coke stúdíóinu og kynntu reglur leiksins fyrir hlustendum og fóru yfir sín fyrstu viðbrögð við breytingum leiksins í ár og verðlagningu lykilleikmanna. Félagarnir ræddu helstu félagsskiptin í enska boltanum sem munu hafa áhrif á komandi tímabil og helstu orðróma sem gætu fengið spilara til að endurskoða sína taktík fyrir tímabilið. Að lokum veittu þeir nýliðum í Fantasy fimm góð ráð hver fyrir komandi tímabil.
Fotbolti.net verður með draumaliðsdeild fyrir lesendur þar sem verður til mikils að vinna. Verðlaun verða tilkynnt síðar.
Þú finnur 38 umferðir á Instagram, TikTok og X @38umferdir þar sem við verðum í gjafastuði í allan vetur.
Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
Ef þú spilar Fantasy Premier League þá borgar sig að fylgjast með 38 umferðum í allan vetur.