Fotbolti.net
06.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

5. deild: Skoraði sex mörk í risasigri

Ýmir Halldórsson skoraði sex fyrir Smára. Hér er hann í leik með Aftureldingu fyrir nokkrum árum

Ýmir Halldórsson skoraði sex fyrir Smára. Hér er hann í leik með Aftureldingu fyrir nokkrum árum

Canon

Mynd: Raggi Óla

Smári 10 - 0 Uppsveitir
1-0 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('45 )
2-0 Ýmir Halldórsson ('52 )
3-0 Ýmir Halldórsson ('55 )
4-0 Ýmir Halldórsson ('59 )
5-0 Ýmir Halldórsson ('65 )
6-0 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('69 )
7-0 Ýmir Halldórsson ('70 )
8-0 Bjarni Harðarson ('77 )
9-0 Ýmir Halldórsson ('80 )
10-0 Hilmir Vilberg Arnarsson ('86 )
Smári tætti Uppsveitir í sig, 10-0, í 5. deild karla í Fagralundi í gær.

Smáramenn hafa farið mikinn í sumar og verið langbesta liðið í A-riðlinum, en staðan var þó aðeins 1-0 í hálfleik.

Allt fór hins vegar á flug í þeim síðari. Ýmir Halldórsson skoraði fjögur mörk á aðeins þrettán mínútum og gerði sig um leið gildandi í baráttunni um markakóngstitilinn.

Gunnar Breki Mýrdal Gunnarsson skoraði sitt annað mark á 69. mínútu áður en Ýmir bætti við sínu fimmta aðeins mínútu síðar.

Bjarni Harðarson gerði áttunda mark Smára á 77. mínútu og Ýmir kórónaði stórkostlegan leik sinn með sjötta markinu. Hilmir Vilberg Arnarsson kom liðinu síðan í tveggja stafa tölu undir lokin.

Smári trónir á toppi A-riðils með 31 stig, fimm stigum meira en næsta lið, og hefur skorað 52 mörk. Uppsveitir eru í næstneðsta sæti með níu stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Skallagrímur13+4132
2Smári13+3632
3SR13+1623
4Þorlákur13+816
5Hörður Í.12-116
6KFS11-312
7Uppsveitir12-409
8Afríka13-573
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.