06.08.26 - 16:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áhugi úr ensku C-deildinni á Óskari Borgþórs

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enska félagið Luton Town hefur áhuga á Óskari Borgþórssyni leikmanni Víkings. Það er Leó Ernir Reynisson sem greinir frá en hann og Óskar léku saman í 2. flokki Fylkis á sínum tíma.
Kantmaðurinn Óskar, sem er 23 ára, ökklabrotnaði fyrir rúmri viku síðan og verður frá næstu þrjá mánuðina vegna meiðsla. Hann hafði spilað mjög vel á tímabilinu og verið einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar. Í 20 leikjum í deild, bikar og meistarakeppni KSÍ skoraði hann 11 mörk og lagði upp átta.

Hann var fyrr í sumar orðaður við sænska félagið GAIS en Víkingur hafnaði tilboðinu.
Luton endaði í 7. sæti ensku C-deildarinnar á síðasta tímabili.
Stuðningsmenn Notts County eru þá einnig að ræða nafn Óskars á samfélagsmiðlum og möguleiki á því að tvö lið í ensku C-deildinni séu að skoða möguleikann á því að kaupa Víkinginn.

Luton Town horfa til Óskar Borgþórs ????
— Leo Reynisson (@leoernir01) August 6, 2026
Luton Town hefur sýnt mikinn áhuga á að fá Óskar í sínar raðir ??????#heimavinnafréttaritarans pic.twitter.com/okajxKECSQ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð