06.08.26 - 22:04
Brynjar Ingi Erluson
Alvarez orðinn aðalskotmark Arsenal

Julian Alvarez

Mynd: EPA

Julian Alvarez

Mynd: EPA
Julian Alvarez, framherji Atlético Madríd, er kominn efstur á óskalista Arsenal eftir að Vinicius Junior framlengdi við Real Madrid. Þetta kemur fram í Times í kvöld.
Arsenal hafði mikinn áhuga á að fá Vini Jr frá Real Madrid og átti í jákvæðum viðræðum við föruneyti Brasilíumannsins. Leikmaðurinn var jafnframt sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við Lundúnafélagið.
Það er ómögulegt að segja hvort Vini Jr hafi notað áhuga Arsenal til að fá betri samning hjá Real Madrid, en það virðist alla vega hafa virkað.
Real Madrid tók upp þráðinn í viðræðunum á dögunum og skrifaði Vini Jr í dag undir nýjan og endurbættan sex ára samning.
Times segir Arsenal því aftur komið að teikniborðinu. Alvarez er nú efstur á óskalistanum en félagið hefur fylgst náið með honum undanfarna mánuði.
Alvarez hefur sett Barcelona í forgang en Atlético harðneitar að selja hann til Börsunga. Þar gæti opnast glufa fyrir Arsenal sem vill sannfæra Argentínumanninn um að snúa aftur til Englands.
Atlético vill fá um 130 milljónir punda fyrir Alvarez. Hann var stórkostlegur á síðustu leiktíð og hefur í raun farið á kostum síðan hann kom frá Manchester City fyrir tveimur árum.