06.08.26 - 23:44
Brynjar Ingi Erluson
Baleba missir af byrjun tímabilsins

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Carlos Baleba, leikmaður Brighton á Englandi, verður ekki með liðinu í fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla.
Baleba meiddist á æfingu Brighton og var ekki með í 4-3 sigrinum á Strasbourg um helgina.
Samkvæmt Athletic meiddist hann á liðbandi í ökkla og mun missa af fyrstu leikjum tímabilsins. Brighton vonast þó til að meiðslin séu ekki alvarleg og að fjarveran verði ekki löng.
Kamerúninn hefur verið gríðarlega mikilvægur á miðsvæðinu hjá Brighton og hefur lengi verið orðaður við Manchester United.
United ákvað hins vegar að horfa annað vegna verðmiðans á Baleba sem er talinn vera í kringum 100 milljónir punda. Félagið keypti þess í stað Andrey Santos frá Chelsea og Youri Tielemans frá Aston Villa.
Brighton hefur keppni 20. ágúst í umspili Sambandsdeildarinnar þar sem liðið mætir annað hvort Cluj eða Tromsö. Þremur dögum síðar spilar það sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Aston Villa.