Fotbolti.net
06.08.26 - 22:58
Brynjar Ingi Erluson

Barcelona búið að ná samkomulagi við Rodri

Barcelona búið að ná samkomulagi við Rodri
Canon

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona hafa náð samkomulagi við spænska miðjumanninn Rodri um kaup og kjör. Þetta segir Fabrizio Romano á X.
Það kom nokkuð á óvart þegar erlendir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Barcelona væri komið í baráttuna um Rodri og hefði tekið forystuna. Real Madrid hafði þá verið í viðræðum um miðjumanninn um nokkurt skeið.

Rodri var valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins í sumar þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar í annað sinn. Hann vill yfirgefa Man City og lengi var Real Madrid fyrsti kostur hans, en staðan hefur nú tekið snöggum breytingum.

Barcelona sendi umboðsmanni Rodri samningstilboð í kvöld og hefur leikmaðurinn samþykkt það. Börsungar þurfa nú að semja við Manchester City um kaupverð.

City vill fá á bilinu 65 til 75 milljónir evra fyrir Rodri og er Barcelona sagt tilbúið að greiða þá upphæð.

Rodri hefur verið einn besti miðjumaður heims síðan hann kom til Manchester City frá Atlético Madríd árið 2019.

Hann vann Ballon d'Or árið 2024 eftir að hafa orðið Englandsmeistari með City og Evrópumeistari með Spáni. Þar með varð hann fyrsti Spánverjinn í 64 ár til að hreppa verðlaunin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.