06.08.26 - 13:47
Elvar Geir Magnússon
Barcelona gæti veitt Real samkeppni um Rodri

Miðjumaðurinn Rodri.

Mynd: EPA

Julian Alvarez.

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Rodri.

Mynd: EPA
Barcelona íhugar að veita Real Madrid samkeppni um spænska miðjumanninn Rodri hjá Manchester City.
Rodri á eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester City og sagt er að enska félagið hafi ekki gefið upp von um að hann framlengi. City sé þó reiðubúið að leyfa honum að fara fyrir um 60 milljónir punda.
Rodri, sem er þrítugur, var valinn besti leikmaður HM þar sem hann stóð uppi sem sigurvegari með spænska landsliðinu.
Áhugi Barcelona á Rodri jókst eftir að miðjumaðurinn Frenkie de Jong varð fyrir hnémeiðslum sem búist er við að haldi honum frá keppni í nokkra mánuði.

TENGT EFNI
Maresca vonast til að halda Rodri
Viðræður um Alvarez ganga illa
Mikil orka hefur farið í það hjá Barcelona í sumarglugganum að reyna að krækja í sóknarmanninn Julián Alvarez hjá Atletico Madrid. Madrídarfélagið vill ekki selja og málin ganga hægt.
Þá er það að frétta af leikmannamálum Börsunga að Ferran Torres, sem skoraði sigurmark Spánar í úrslitaleiknum gegn Argentínu á HM, er kominn inn í lokaár samnings síns en viðræður eru ekki komnar af stað um nýjan samning.