Fotbolti.net
06.08.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Bayern á eftir Gibbs-White

Bayern á eftir Gibbs-White
Canon

Mynd: EPA

Þýskalandsmeistarar Bayern München eru komnir í baráttuna um Morgan Gibbs-White, leikmann Nottingham Forest, samkvæmt Daily Mail.
Gibbs-White hefur verið stórkostlegur með Nottingham Forest undanfarin ár en gæti yfirgefið félagið í sumar.

Hann skipti um umboðsmann á dögunum og samkvæmt Daily Mail eru nú nokkur stórlið komin í baráttuna um hann.

Gibbs-White, sem er 26 ára gamall, var nálægt því að ganga til liðs við Tottenham á síðasta ári en hætti við á síðustu stundu og skrifaði þess í stað undir nýjan samning við Forest. Nú gæti sagan hins vegar tekið aðra stefnu.

Manchester United og Chelsea hafa bæði mikinn áhuga á miðjumanninum og Bayern München er einnig komið í kapphlaupið.

Bayern keypti Michael Olise frá Crystal Palace fyrir tveimur árum og hefur augastað á fleiri leikmönnum sem hafa slegið í gegn hjá minni félögum á Englandi.

Forest vill ekki selja Gibbs-White en gæti neyðst að samningaborðinu ef tilboð berst sem erfitt verður að hafna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.