Fotbolti.net
06.08.26 - 15:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalski boltinn

Bjarki Steinn á leið til FCS

Bjarki Steinn á leið til FCS
Canon

Mynd: Venezia FC

Bjarki Steinn Bjarkason er á leið til ítalska félagsins Südtirol en hann er að yfirgefa Venezia. FCS er í næstefstu deild Ítalíu og endaði í 16. sæti á síðasta tímabili.

Bjarki Steinn, sem er 26 ára, hefur verið hjá Venezia síðan 2020 en þá var hann keyptur frá ÍA.

Hann er fjölhæfur leikmaður, getur bæði spilað miðsvæðis og í hægri bakverði, og kom við sögu í 15 leikjum þegar Venezia vann ítölsku B-deildina á síðasta tímabili. Meiðsli komu í veg fyrir að hann spilaði meira. Í leikjunum 15 skoraði hann eitt mark og lagði upp eitt.
Südtirol er nyrst á Ítalíu við landamæri Austurríkis.

Bjarki á að baki sjö A-landsleiki og var síðat í landsliðinu í nóvember í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.