06.08.26 - 22:37
Brynjar Ingi Erluson
Búinn í aðgerð og óvíst hvort hann spili aftur með Keflavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Kralj, leikmaður Keflavíkur, hefur gengist undir aðgerð vegna ökklameiðsla og verður frá keppni út tímabilið. Óvíst er hvort hann spili aftur með liðinu.

TENGT EFNI
Ekkert meira með Keflavík í sumar
Kralj gekk til liðs við Keflavík frá bikarmeisturum Vestra fyrir tímabilið en meiddist á ökkla í 5-2 sigrinum á ÍA undir lok síðasta mánaðar.
Hann þurfti að fara af velli í síðari hálfleik og hafa Keflvíkingar nú staðfest að hann verði frá keppni það sem eftir lifir tímabils.
Bakvörðurinn hafði leikið vel með Keflavík fram að meiðslunum og er þetta því mikið áfall fyrir bæði hann og liðið.
Kralj er samningsbundinn Keflavík út næsta tímabil, en áður en hann kom til Íslands hafði hann þó rætt um að draumurinn væri að halda ferlinum áfram í Svíþjóð, þar sem hann er fæddur og uppalinn.
Keflvíkingar vonast engu að síður til að hann verði áfram hjá félaginu og snúi sterkur til baka á næsta tímabili.
„Við sendum Antoni okkar bestu batakveðjur og vonumst til þess að sjá hann aftur í okkar herbúðum í framtíðinni,“ segir í tilkynningu Keflvíkinga.